Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar.
Breytingin felur einnig í sér heimild til að bæta einni inndreginni hæð ofan á húsið. Þá verður heimilt að grafa frá því austanverðu til að hleypa birtu niður í kjallarann.
Umsókn TÓ arkitekta um breytinguna var auglýst frá 15. maí til 26. júní. Athugasemdir bárust og samþykkti ráðið tillöguna í dag með breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa frá 15. september.
Ágreiningur um bílastæði
Athugasemdir við áformin hafa meðal annars varðað eignarhald á sameiginlegri lóð, þinglýsta samninga og réttindi tengd bílastæðum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar leggja áherslu á að samþykkt skipulagsbreytingarinnar leysi ekki þann ágreining. Hún ákveði hvorki hver eigi stæðin né hver hafi rétt til að nota þau.
Slíkar deilur verði að leysa milli viðkomandi aðila eða, eftir atvikum, fyrir dómstólum.
Vilja verslun eða þjónustu á jarðhæð
Fulltrúar Samfylkingarinnar eru jákvæðir gagnvart því að Valhöll fái nýtt hlutverk. Þeir gera ekki athugasemd við viðbótarhæðina, enda verði byggingarlist hússins varðveitt.
Þeir leggja jafnframt áherslu á að jarðhæðin verði opin almenningi með verslun eða þjónustu sem glæddi götuna lífi.
Samfylkingin telur bílastæðamál ekki eiga að stöðva verkefnið en segir þurfa að skýra hvernig stæðin verði samnýtt, tryggja réttindi annarra eigenda á reitnum og sjá fyrir öruggri aðkomu hópferðabíla og vöruflutninga.