Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur alla ökumenn til að fara varlega enda geti myndast hálka á stöku stað eftir talsverða úrkomu fyrr í dag og haga akstri í samræmi við það.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum