Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar fólk með nánd og kynlíf.Hún hefur sofið hjá yfir hundrað giftum karlmönnum undanfarin sex ár, síðan hún hóf þennan starfsferil. Hún segir að þrátt fyrir gagnrýnisraddir bjargi hún hjónaböndum. Hún segir örvæntingarfulla karlmenn leita til hennar og að þeir hafi margir hverjir ekki stundað kynlíf með eiginkonu sinni í mörg ár, stundum nokkra áratugi.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum