Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækninni sem er gervihnattasamskiptakerfi í eigu SpaceX sem er í eigu Elon Musk.
Úkraínskir hermenn fóru að taka eftir takmörkununum aðfaranótt miðvikudags sem fólust í því að ekki væri hægt að fljúga drónum hraðar en sextíu kílómetra á klukkustund án þess að rjúfa tenginu við drónana. Samkvæmt umfjöllun The Guardian gerir það drónana handan víglínunnar óvirka. Einnig hafa takmarkanirnar áhrif á loftvarnarkerfi Úkraínumanna sem væri hvað skilvirkast gagnvart rússneskum árásardrónum.
Musk sagði sjálfur í yfirlýsingu fyrr í kvöld að sá hluti tækninnar sem stjórnar áðurnefndum takmörkunum væri undir stjórn bandaríska varnarmálaráðuneytisins og hafði hann ekkert með málið að gera.
„Ég er sannfærður um að þeir vissu hvað þeir voru að gera, alveg örugglega. Því klukkan eitt um nótt lokuðu SpaceX og Bandaríkin fyrir Starlink,“ sagði Selenskí í viðtalinu.
„Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf, auðvitað mun fólk deyja.“
Vill stöðva árásirnar
Gerðar voru árásir á Úkraínu í nótt og var það önnur nóttin í röð þar sem Rússar gerðu árásir án þess að einhvers konar viðvörun kæmi frá Bandaríkjunum. Árum saman hafi Bandaríkin veitt Úkraínu upplýsingar um yfirvofandi árásir.
Trump neitaði því að ríkisstjórnin hans hefði hætt upplýsingamiðluninni á meðan Selenskí sagði í viðtali við NRP að hernaðarráðgjafar hans hefðu fengið hótanir frá Bandaríkjamönnum. Hótanirnar fælust í því að upplýsingamiðlun kynni að verða takmörkuð í framtíðinni.
Ástæðan kann að vera að Trump sé ósáttur með árásir Úkraínumanna á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Bandaríkjaforsetinn kennir árásunum um hátt bensínverð í Bandaríkjunum en vísar blaðamaður Guardian í sérfræðinga sem telja að lokun Hormússundsins sé frekar það sem leiði til hás olíuverðs heldur en árásir Úkraínumanna.