Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Ströndum og á Norðurlandi vestra. Krap eða snjóþekja er víða á vegum á Vestfjörðum og varað er við hálku á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við því að Holtavörðuheiði verði lokað með skömmum fyrirvara. Þá er fólk beðið um að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð