Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þröskuldar og Dynjandisheiði einnig á óvissustigi.
Steingrímsfjarðarheiði er einnig á óvissustigi en heiðin varð ófærð fyrr í kvöld og veginum því lokað.
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum til klukkan eitt í nótt. Þá tekur við gul veðurviðvörun sem fellur úr gildi klukkan fimm í fyrramálið.
Hægt er að fylgjast með færð á vegum á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is.