Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.
Á Vestfjörðum er slæmt skyggni og versnandi færð og gildir veðurviðvörun til klukkan fimm í fyrramálið. Það sama gildir um Strandir og Norðurland vestra þar sem viðvaranir gilda til klukkan sjö og einnig á Norðurlandi eystra þar sem viðvaranir gilda klukkan tíu.
Á Austurlandi að Glettingi gilda viðvaranir lengst, eða til klukkan ellefu fyrir hádegi á morgun.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu gildir enn þá fyrir norðanverða Vestfirði. Einnig á utanverðum Tröllaskaga en þar eru líkur á snjóflóði þó ekki taldar miklar.