Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í íslensku sem öðru máli.
„Það hefur verið mikið ákall eftir því að kennaramenntun á Íslandi verði efld þannig að kennarar geti sinnt þessum hóp enn betur. Við erum að fara að kenna kennurum að kenna íslensku sem annað mál,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.
Í fyrsta sinn á Íslandi
Hin námsleiðin verður kennd í fyrsta sinn á Íslandi til bakkalársprófs. Það er nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf við hjúkrunarfræðideild skólans.
„Við ætlum að bjóða upp á grunnnám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf sem er löngu orðið þörf fyrir í íslensku samfélagi. Og það hefur lengi verið kallað eftir því að þetta nám fari upp á háskólastigið alveg. Þetta er löggilt starfsheiti og búið að vera í mörg ár. Heilbrigðisráðuneytið hefur haft áhuga á því að þetta fari á háskólastig.“
Nægt pláss við skólann
Fréttir hafa verið fluttar af bágborinni stöðu í húsnæðismálum háskólans að undanförnu en Áslaug segir nægt pláss vera fyrir nýja nemendur og nýjar námsleiðir.
„Það er alveg pláss fyrir þetta hjá okkur. Báðar námsleiðirnar eru, eins og nánast allt annað nám hjá okkur, hannaðar út frá því að þetta sé óháð búsetu. Við viljum auðvitað hafa nemendur á Akureyri og við erum með stóran hóp nemenda á Akureyri – en markmiðið með báðum námsleiðunum er að þessi þörf er út um allt land.“