Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.
Ábending um að myndavélin hefði fundist í sturtum kvenkyns hermanna barst nýlega ráðherranum Jacqui Lambie og vakti hún máls á atvikinu í ræðu fyrir ástralska þinginu í gær. Þar sagði Lambie jafnframt að mögulegt væri talið að upptökum úr sturtunum hafi verið deilt á vefnum áður en myndavélin uppgötvaðist.
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu segist líta málið alvarlegum augum og að hegðun sem þessi verði ekki liðin. Skipið hefur verið kyrrsett eins og er svo hægt sé að rannsaka málið og veita áhafnarmeðlimum stuðning.