Dahir Ibrahim, sómalskur nauðgari sem afplánar lífstíðardóm í Bretlandi, hefur unnið mál gegn opinbera heilbrigðiskerfinu vegna lyfjagjafar í fangelsi meðan á ramadan stóð. Hann hafði áður fengið brottvísun hnekkt og nauðgaði síðar tveimur konum til viðbótar.
Í dómi sem kveðinn var upp 29. september hafnaði High Court dómstóllinn í Englandi áfrýjun Birmingham Community Healthcare NHS Trust, sem annast heilbrigðisþjónustu í fangelsinu í Birmingham. Þar með stendur niðurstaða um að Ibrahim hafi orðið fyrir mismunun vegna trúar sinnar.
Fékk að vera áfram og nauðgaði tveimur konum til viðbótar
Ibrahim hafði komið frá Sómalíu og fengið hæli í Bretlandi. Árið 2006 var hann dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að nauðga tveimur konum.
Sakfellingin vegna annarrar konunnar var felld úr gildi við áfrýjun árið 2012 vegna galla á málsmeðferð.
Samkvæmt umfjöllun frá þeim tíma tókst honum einnig að fá brottvísun hnekkt og fékk hann því að vera áfram í Bretlandi.
Í september og október 2014 nauðgaði hann síðan tveimur konum til viðbótar í Birmingham með sex vikna millibili. Hann hótaði annarri með dúkahnífi og hinni með töng og skrúfjárni. Báðar konurnar hlutu áverka og fengu hjálp frá vegfarendum.
Fyrir þær árásir var Ibrahim dæmdur í lífstíðarfangelsi árið 2016.
Vildi fá kódein utan föstutíma
Málið á rætur að rekja til ramadan árið 2019. Ibrahim hafði fengið ávísað kódeini, ópíóíðaverkjalyfi, einkum vegna verkja í hné.
Samkvæmt reglum fangelsisins varð hann að taka lyfið undir eftirliti hjúkrunarfræðings á föstum afgreiðslutímum. Þeir féllu innan þess tíma dags sem hann fastaði og mátti samkvæmt trúarreglum sínum hvorki neyta matar, drykkjar né lyfja um munn.
Sumir múslimskir fangar fengu lyfjapakka til að taka með sér í klefann og nota eftir sólsetur. Kódein var hins vegar undanskilið vegna hættunnar á að lyfið væri misnotað.
Ibrahim neitaði því að taka kódeinið á afgreiðslutímanum. Honum voru síðar útveguð önnur verkjalyf sem hann gat tekið utan föstutíma.
Engar fébætur dæmdar
Ibrahim höfðaði mál og krafðist bæði viðurkenningar á mannréttindabroti og fébóta. Hann hélt því meðal annars fram að hann hefði fengið fráhvarfseinkenni þegar hann hætti að taka kódein.
Dómstóllinn taldi frásögn hans af fráhvarfseinkennum ekki trúverðuga. Hann fékk engu að síður viðurkenningu á því að fyrirkomulag lyfjagjafarinnar hefði mismunað honum vegna trúar.
Heilbrigðisstofnunin hafði vísað til öryggis og takmarkaðs mannafla. Dómstóllinn taldi hana hins vegar ekki hafa sýnt fram á að hún hefði raunverulega kannað aðrar leiðir til að gefa honum lyfið utan þess tíma dags sem fastað er. Þegar Ibrahim kom tímabundið aftur í fangelsið vegna málarekstursins árið 2024 fékk hann kódein að kvöldi og nóttu undir eftirliti.
Engar fébætur voru þó dæmdar í málinu.