Fjölmenni var á íbúafundi á Ásvöllum í Hafnarfirði á þriðjudagskvöld um fyrirhugað íbúðahverfi við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hafnarfjarðarbær gerði samning við Styrkás fasteignir í síðasta mánuði um uppbyggingu á tímabundnu starfsmannahverfi.
Um er að ræða tíu hektara land þar sem til stendur að setja upp gámahverfi fyrir erlent starfsfólk sem er hér vegna tímabundinnar vinnu. Húsnæðið verður einungis leigt til starfsfólks fyrirtækja en ekki einstaklinga. Þá er það ekki ætlað fjölskyldum eða til varanlegrar búsetu eldra fólks. Lóðarleigusamningur yrði gerður til tíu ára en í framhaldi á Styrkás Fasteignir rétt til úthlutunar lóða á svæðinu til uppbyggingar varanlegs íbúðarhúsnæðis.
Samkomulagið var samþykkt í bæjarráði 17. september með fjórum atkvæðum gegn einu. Fulltrúi Miðflokksins greiddi einn atkvæði gegn því. Mikil andstaða kom upp meðal íbúa þegar samkomulagið var samþykkt og um þrjú þúsund hafa skrifað nafn sitt á undirskriftalista til að mótmæla áformunum. Íbúar voru ósáttir við staðsetningu hverfisins og að ekki hefði verið haft samráð við þá.
300 manna íbúafundur
Hafnarfjarðarbær boðaði til íbúafundar á þriðjudagskvöld þar sem aðilar málsins stóðu fyrir svörum. Orri Björnsson formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar segir að fundurinn hafi verið fjölmennur og góður.
„Við fengum bæði gagnrýni, hugmyndir og tillögur. Við ætlum að vinna úr þeim og ég er búinn að tala við forsvarsmenn Styrkáss fasteigna og segja að við verðum að fara ofan í samninginn og taka tillit til þeirra athugasemda sem komu fram á fundinum. Það verða næstu skref að vinna samninginn meira í anda þess sem kom fram á fundinum og sjá hvernig málin þróast áfram.“
Orri segir að ábendingarnar hafi verið alls konar. „Einhverjir töldu að ákvæðin í samningnum væru ekki nógu skýr um bæði hvað varðar búsetu og fjölda í íbúðum og slíkt og svo voru athugasemdir við félagslega þáttinn, að þetta væri einsleit byggð.“
Líkt og kom fram áðan eru íbúðirnar einungis ætlaðar erlendu starfsfólki sem kemur til landsins í skemmri tíma vegna atvinnu. Orri segir að þetta sé meðal annars hugsað til að fækka íbúum í óleyfisíbúðum sem séu því miður of margar í atvinnuhverfum.
„Það voru einnig spurningar um hvernig þetta fólk fengi þjónustu ef það myndi missa vinnuna og hvort það ætti þá rétt á félagslegum stuðningi bæjarins.“
Staðsetningin dýrmæt
Íbúar mótmæla einnig staðsetningunni og telja að byggðin myndi breyta eðli hverfisins verulega og skerða óbyggt hraun og aðkomuna að Hvaleyrarvatni, einu vinsælasta útivistarsvæði bæjarins. Þá gerðu þeir athugasemd við að þó að byggðin sé kynnt sem tímabundin séu lóðarleigusamningar til 10 ára með möguleika á framlengingu og að framkvæmdaaðilinn fái þannig rétt til að byggja varanlegt íbúðarhúsnæði á svæðinu síðar.
Útsvarstekjur fyrir bæinn
„Þessi staðsetning er valin því hún er innan vaxtamarkanna. Við settum það skilyrði að þarna væri fólk með skráð sitt lögheimili þannig þau væru skráð sem íbúar í húsnæðinu, ólíkt því sem er í atvinnuhverfunum. Þannig fengjum við útsvarstekjur sem skipta okkur máli og það gerist ekki nema þetta sé innan vaxtamarkanna.“
Orri segist furða sig á að íbúar hafi gagnrýnt að samkomulagið hafi verið gert án nokkurs samráðs við þá.
„Þá spyr ég á móti. Hvenær á að hafa samráð við íbúa? Á að hafa samráð við íbúa þegar það er haft samband við okkur og leggja ókláruð drög fyrir þá? Það er ekki hægt að hafa samráð áður en þú ert kominn með eitthvað í hendurnar. Það er ákveðin ómöguleiki í því að hafa samráð áður en þú ert með eitthvað til að leggja á borðið.“