Að minnsta kosti átta eru látnir í Mexíkó eftir að hitabeltisstormurinn Rachel reið yfir strendur landsins við Kyrrahafið.
Frá því í síðustu viku hefur stormurinn valdið sérstaklega miklum rigningum og flóðum í ríkinu Baja California sem á landamæri að Bandaríkjunum.
Mexíkóski herinn heldur utan um björgunaraðgerðir en 32 hefur verið bjargað með þyrlu. Tveggja er þó enn þá saknað.
Tveir aðrir stormar virkir
Fellibyljatímabilið á Kyrrahafinu er talið verða ofsafengnara en fyrri ár vegna El Niño veðurfyrirbrigðisins sem hitar yfirborð sjávar og raskar vind- og regnmynstrum.
Tveir aðrir stormar, nefndir Simon og Judy, eru á sveimi yfir Kyrrahafinu nærri Mexíkó eins og er en hvorugur þeirra er talinn líklegur til að ná landi. Simon hefur þó valdið úrhellisrigningum í ríkjunum Jalisco og Guerrero þar sem 71 árs kona lést þegar veggur hrundi yfir hana.