Gárungar sögðu að um væri að ræða einn stærsta áfanga í tíuþúsund ára sögu stærðfræðinnar. En þótt gervigreind OpenAI svipti stærðfræðinga tilgangi sínum virðist ChatGPT ekki kunna að telja upp að 68.
Getur ekki lagt saman tvo og tvo
Í vikunni hugðist ég útbúa hvatakerfi fyrir sex ára son minn: Ef hann væri duglegur að gera heimavinnuna sína á hverjum degi fram að jólafríi í skólanum fengi hann verðlaun.
Ég bað ChatGPT um að teikna einfalda mynd af 68 stjörnum, sem syninum væri ætlað að lita daglega að heimalærdómi loknum.
Fyrsta tilraun vitlíkisins innihélt 65 stjörnur. Sú næsta 69. Þriðja myndin taldi 72. Sama hvað ég reyndi urðu stjörnurnar aldrei 68.
Í árdaga ChatGPT hlógu stærðfræðingar dátt að takmörkuðum reiknihæfileikum gervigreindarinnar. Dagblaðið The Wall Street Journal sagði til að mynda frá því snemma árs 2023 að ChatGPT reiknaðist til að 2 x 300 væri 500. Notandi á tæknispjallinu Hacker News hæddist að viðleitninni og sagði ekki um raunverulega gervigreind að ræða heldur „mállíkan sem gæti ekki lagt saman tvo og tvo.“
Gervigreind er þó ekki eina greindin sem leggur ekki alltaf rétt saman tvo og tvo.
Hálfsmánaðarlaun millistjórnanda
Hið árlega jólabókaflóð geysist nú fram. Oft liggur margra ára vinna að baki afurða sem enda á náttborðum og í jólapökkum landsmanna. Ávinningur fyrir rithöfunda er þó oft litlu meiri en hálfsmánaðarlaun millistjórnanda.
Það svíður því sérstaklega sárt þegar stórfyrirtæki á borð við OpenAI, sem þróar spjallmennið ChatGPT og veltir milljörðum bandaríkjadala, notar stolin sjóræningjaeintök af bókum rithöfunda til að búa til sína eigin afurð.
Rithöfundar um heim allan krefjast þess nú að þeim verði greidd afnotagjöld séu verk þeirra notuð til að þjálfa gervigreind.
Auðvitað ætti OpenAI að greiða mér fyrir afnot af höfundavörðum texta sem ég skrifa, rétt eins og ég greiði OpenAI fyrir afnot af ChatGPT til að föndra stjörnukort handa syni mínum.
Reiknisdæmið er þó flóknara en það lítur út í fyrstu.
Varla eini Íslendingurinn
Gervigreind virðist farin að geta leyst flóknar stærðfræðiþrautir. Íslenskufærni hennar jafnast hins vegar á við færni hennar í að telja upp á 68: Viðleitnin er aðdáunarverð en niðurstöðunni er ábótavant.
Ég efast um að ég sé eini Íslendingurinn sem kýs að eiga samskipti við spjallmenni á ensku frekar en að ráða fram úr bjagaðri íslensku sem hljómar oft eins og verulega illa þýddur texti úr öðru tungumáli.
Í síðustu viku kom út skýrsla starfshóps sem leggja átti mat á nálgun íslenskra stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Skýrslan er efnismikil og vönduð en þar er klykkt út með orðunum: „Næstu skref eru stjórnvalda.“
Kannski að næstu skref séu þó á ábyrgð fleiri en stjórnvalda.
Í skýrslunni er sú hugmynd viðruð að stór tæknifyrirtæki greiði sérstakt gjald fyrir afnot af höfundarréttarvörðu efni við þjálfun gervigreindar, sem ríkið sjái um að koma til rétthafa.
Þótt dæmi séu um að gervigreindarfyrirtæki geri samninga við einstaka útgefendur um afnot af efni eru enn sem komið engin fordæmi um að slík starfsemi falli undir lögbundið gjaldtökukerfi. Jafnframt halda fyrirtæki á borð við OpenAI því fram að þjálfun gervigreindar með efni sem aðgengilegt er á netinu falli undir bandarískar reglur um „fair use“, eða sanngjarna notkun, og krefjist því hvorki leyfis né endurgjalds.
Kurteisir skýrsluhöfundar
Gervigreind ryður sér til rúms á flestum sviðum mannlífsins. Tali hún ekki almennilega íslensku er hætt við að enn fjari undan tungumálinu.
Tveir plús tveir eru fjórir. En hvernig reiknum við út virði íslenskrar tungu?
Tregða tæknifyrirtækja við að greiða fyrir afnot efnis við þjálfun gervigreindar gæti leitt til þess að þau slepptu heldur að leggja rækt við íslenskuna en að semja um afnotagjald við íslenska leyfishafa.
Eftirfarandi er spurning, sem höfundar fyrrnefndrar skýrslu voru sennilega of kurteisir til að spyrja: Verða íslenskir rithöfundar og aðrir sem vinna með íslenskt mál ekki einfaldlega að sætta sig við áframhaldandi „stuld“ tæknifyrirtækja á verkum þeirra til þess að tryggja að íslenskan verði ekki undir í gervigreindarbyltingunni?