Allhvöss eða hvöss norðvestanátt er víða um landið þrátt fyrir að veðrið hafi róast mjög frá því sem gekk á í gær. Hríðarveður er norðanlands.
Tvær gular viðvaranir eru í gildi vegna hríðarveðurs, önnur á Norðurlandi eystra til klukkan tíu og hin á Austurlandi að Glettingi til klukkan ellefu.
Vetrarfærð er víða um land, einkum þó á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Þetta á þó líka við á fjallvegum víða um land, svo sem á Hellisheiði og Mosfellsheiði. Unnið er að mokstri og hreinsun. Nýjustu upplýsingar um færð er að finna á umferðarvef Vegagerðarinnar.
Það dregur úr vindi þegar líður á daginn en suðaustan- og austanlands má búast við hvössum norðvestan vindstrengjum fram undir kvöld.
Veðurspáin er svohljóðandi:
13-20 m/s og snjókoma eða slydda, en úrkomuminna sunnan heiða. Dregur úr vindi og ofankomu í dag, suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 eftir hádegi og skúrir eða él á víð og dreif, en hvassir vindstrengir suðaustan- og austantil fram undir kvöld. Hiti kringum frostmark, en 2 til 8 stig við suður- og vesturströndina.
Suðvestan 8-15 á morgun og lítilsháttar skúrir, en bjart að mestu um landið austanvert. Hiti 4 til 10 stig.