Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eyjagöngum ehf. Norski jarðgangnasérfræðingurinn Eivind Grøv var staddur hér á landi á dögunum en hann er einn helsti ráðgjafi Eyjaganga ehf. við undirbúning verkefnisins.
Grøv var yfirvísindamaður hjá norsku rannsóknastofunni SINTEF og prófeossor við norska tækni- og vísindaháskólann NTNU. Þá er hann fyrrverandi varaforseti alþjóðasamtaka um jargangagerð (ITA) og hefur veitt ráðgjöf við verkefni í yfir tuttugu löndum.
Munu liggja á um 220 metra dýpi
Kjarnaboranir voru framkvæmdar á Eiðinu á Heimaey í sumar sem og á Landeyjasandi. Borholan á Heimaey náði 234 metra dýpi og holan í Landeyjasandi 291,5 metrum en í tilkynningu frá Eyjagöngum segir að fyrirhuguð göng til Eyja muni að stærstum hluta liggja á um 220 metra dýpi.
Í tilkynningunni segir jafnframt að kjarnarnir úr báðum holunum hafi reynst mjög góðir frá 160 metra dýpi og neðar.
„Kjarnarnir eru mun betri en ég hafði búist við og það lofar góðu. Þegar niðurstöður hafsbotnsrannsóknanna liggja fyrir fáum við heildstæðari mynd af berginu á allri gangaleiðinni,“ er haft eftir Eivind Grøv í tilkynningu Eyjaganga.
Tvö sjálfstæð fýsileikamöt unnin í framhaldinu
Íslenskar orkurannsóknir framkvæmdu hafsbotnsrannsóknir á gangaleiðinni í sumar en þá var notaður endurkastmælir til að kortleggja efstu jarðlögin undir hafsbotni.
Unnið er að úrvinnslu ganganna en þegar niðurstöður þeirra rannsókna sem og greining borkjarnanna liggur fyrir fyrir verða unnin tvö sjálfstæð fýsileikamöt.
„Það skiptir okkur miklu máli að einn reyndasti jarðgangasérfræðingur Noregs hafi skoðað kjarnana sjálfur og að mat hans sé svo jákvætt. Tvö sjálfstæð fýsileikamöt, unnin af innlendum og norskum sérfræðingum, munu leggja traustan grunn að ákvörðunum um næstu skref,“ segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga ehf í tilkynningu fyrirtækisins.