Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur hafnað kröfu einstaklings sem gekkst undir varafyllingar um endurgreiðslu og skaðabætur. Hélt umræddur einstaklingur því fram að varafyllingarnar hefðu orsakað útbrot í andliti hans. Nefndin taldi það hins vegar ósannað þrátt fyrir að útbrotin hafi birst daginn eftir að varafyllingarnar hefðu verið settar í.Kvartandinn krafðist endurgreiðslu, alls 39.000 krónur, frá þeim aðila sem veitti þjónustuna auk endurgreiðslu læknis- og lyfjakostnaðar upp á 5.900 krónur og greiðslu 200.000 króna í miskabætur.
Neitað um endurgreiðslu og skaðabætur vegna umdeildra varafyllinga - Ekki dugði að útbrot hafi birst daginn eftir