Talsverð vinna er framundan næstu daga, einkum á Siglufirði, eftir óveðrið sem gekk yfir í gær. Þetta segir Hermann Karlsson aðalvarðstjóri í aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra.
Hann segir hvellinn á Siglufirði, þar sem hviður fóru upp í 55 metra á sekúndu í gær, hafa verið meiri en hefði verið búist við.
Þó nokkur hús eru skemmd í bænum auk lausamuna og bíla. Björgunarsveitir frá Dalvík, Akureyri og Ólafsfirði komu þar að aðgerðum.
Óveðrinu slotaði seinni partinn í gær og aðgerðastjórn hófst handa við að fyrirbyggja frekara tjón.
„Inn í kvöldið varð rólegt. Inn í nóttina þá gengu hlutirnir vel fyrir sig og við drógum seglin okkar saman jafnt og þétt. Um eitt í nótt vorum við komin með allan okkar mannskap í hvíld,“ segir Hermann.
Gul viðvörun er í gildi á Norðurlandi eystra til klukkan 10.