Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að veita foreldrum og forsjáraðilum aðstoð við að fjarlægja VPN-stillingu í símum barna þeirra sem hafa keypt fölsuð rafræn skilríki. VPN-stillingin sem skilríkin byggja á gerir ókunnugum kleift að lesa og breyta netumferð barnanna.
Þjónustan verður í boði á lögreglustöðinni við Hlemm milli 11 og 12 í dag. Einnig er hægt að fylgja leiðbeiningum neðst í tilkynningu á vef lögreglunnar um hin fölsuðu skilríki og varasömu VPN-tengingu.