Í frétt Guardian segir að mótmælendur hafi kastað steinum að lögreglu í mótmælunum sem snúist um hærri kostnað vegna menntunar og spillingu. Skipuleggjendur úr röðum námsmanna sögðu að mótmælin snerust um aðstæður í háskólum, kostnað við háskólanám, skort á fjárhagsstuðningi og atvinnuhorfur að námi loknu.
Lögreglan beitti vatnsbyssum og táragasi til að stía mótmælendum í sundur eftir að þeir kveiktu í húsnæði ráðuneytis, veltu ruslatunnum og brutu glugga fyrirtækja í nágrenninu. Útibú Raiffeisen-bankans nálægt ráðuneytinu varð einnig eldi að bráð.
Bajram Begaj forseti fordæmdi ofbeldið og hvatti til stillingar og bætti við: „Stjórnarskráin og lögin verða að vera mörk fyrir alla, án undantekninga.“
Vilj aðgerðir gegn spillingu
Mótmælin eru hörðustu átökin til þessa gegn Edi Rama forsætisráðherra, sem var kjörinn til fjórða kjörtímabils í maí í fyrra en hefur síðan mætt vaxandi óánægju vegna meintrar spillingar meðal æðstu embættismanna. Mótmælendur hafna jafnframt leiðtogum stjórnarandstöðunnar og segja þá ekki skárri kost.
Mótmælin hófust í sumar og hafa að mestu farið friðsamlega fram. Mótmælendur hafa kallað eftir afsögn forsætisráðherrans Edi Rama, stjórnarskrárumbótum og raunhæfum aðgerðum gegn spillingu í landinu.
Flamingóbyltingin
Fyrst um sinn, þegar mótmælaaldan hófst, snérust mótmælin um fyrirhugaða uppbyggingu lúxushótels á náttúruverndarsvæði. Félagið á bak við fjárfestinguna tengist Jered Kushner, eiginmanni Ivönku Trump, og einum nánasta ráðgjafa Bandaríkjaforseta.
Mótmælin hafa verið kennd við flamingóa, Flamingóyltingin, vegna þess að lúxusbyggingarnar átti að reisa á friðlýsta votlendinu Vjosa–Narta og á eyjunni Sazan og ógna viðkvæmu strandvistkerfi sem er mikilvægt búsvæði rósaflamingóa, krullupelíkana, Miðjarðarhafsmunkasela og klumbuskjaldbaka.
Mótmælendur hafa því brotið flamingóa úr pappa, uppblásna flamingóa og breytta þjóðfána með flamingóum til að krefjast umhverfisverndar.
„Þetta er bylting. Við erum orðin þreytt á friðsamlegum mótmælum. Við hættum ekki fyrr en Rama segir af sér,“ er haft eftir Lora, mótmælanda og námsmanni, í frétt Guardian. Lora vildi ekki gefa upp eftirnafn sitt á meðan hún kastaði grjóti í lögregluna. Aðrir hrópuðu „afsögn“ og „glæpalögregla“.
Óeirðirnar eru hluti af víðtækari bylgju aðgerða námsmanna sem gengur yfir Evrópu vegna menntunar og lífskjara. Í Frakklandi hafa framhaldsskólanemar staðið fyrir margra vikna mótmælum og lokunum skóla og krafist fleiri kennara og betri aðstöðu, með þeim rökum að hrörnandi skólabyggingar og yfirfullar kennslustofur grafi undan menntun.
Albanskir fjölmiðlar greindu frá því að mótmælin á miðvikudag hefðu breiðst út til háskóla í Elbasan og Shkodër.
Fulltrúar stjórnvalda hafa fordæmt mótmælin.
Albana Koçiu, aðstoðarforsætisráðherra Albaníu, sagði á Facebook að þó svo að hver og einn hefði réttinn til að mótmæla mætti það ekki nota sem afsökun fyrir því að nota ofbeldi eða gera tjón á eignum. Hann hvatti mótmælendur
Þá segir í frétt Guardian að lögreglan í Tirana hafi hvatt til stillingar í yfirlýsingu og ítrekað að þeir sem beiti ofbeldi og valdi skemmdarverkum yrðu sóttir til saka.
Þá hafi sendinefnd Evrópusambandsins í Tirana sagt í yfirlýsingu að hún hafi skráð hjá sér tilkynningar um ásakanir um óhóflegt ofbeldi lögreglu gegn mótmælendum og lögreglu. Albanía hefur verið umsóknarland í Evrópusambandið frá 2014 og því sérstök sendinefnd starfandi. Í frétt Guardian segir að í yfirlýsingu sendinefndarinnar hafi verið lýst yfir áhyggjum af „ofbeldisfullum stigmögnun mótmæla í Tirana“. Sendinefndin kallaði eftir skjótri rannsókn og hvatti „alla aðila til að draga úr spennunni“.