Innflutt ofbeldi í grunnskólum

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Í teprulegri fundargerð frístunda- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar segir af vaxandi ofbeldi í grunnskólum borgarinnar. Svo er að skilja að foreldrar sem nemendur séu gerendur. Tíðni ofbeldisverka aukist, talað er um að varla líði sá dagur að ekki sé tilkynnt um ofbeldisatvik.
Hér vantar nánari útskýringar. Varla eru dæmigerðir íslenskir nemendur og foreldrar þeirra orðnir ofbeldishneigðir fram úr hófi og kunna ekki lengur að hemja sig í daglegri umgengni.
Á milli línanna má lesa að ofbeldið sé innflutt. Helstu gerendur séu nýbúar hér á landi.
Eftir að Ísland varð aðila að EES-samningnum, sem tók gildi 1994, opnaðist leið Evrópumanna á íslenskan vinnumarkað. Tugir þúsunda Evrópumanna, margir með fjölskyldur, komu til Íslands fyrir og eftir aldamótin. Ekki jókst ofbeldið í kjölfar hingaðkomu Evrópumanna sem virðist meira og minna aðlagast íslensku samfélagi án vandkvæða.
Vaknar þá spurningin hvort hér sé um að ræða hælisleitendur frá framandi menningarsvæðum sem þakka fyrir íslenska gestrisni með ofbeldisverkum.
Danir hafa fyrir löngu áttað sig á að uppruni útlendinga í Danmörku skiptir höfuðmáli þegar tíðni lögbrota og ofbeldisverka er skoðuð. Danir halda opinbera skráningu um uppruna útlendinga sem komast í kast við dönsk lög.
Í áratug hafa streymt til landsins hælisleitendur. Opingáttarstefna íslenskra stjórnvalda spyrst út til alþjóðlega hælisiðnaðarins sem sendir flugvélafarma hingað á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Hér heima starfar lögfræðistóð á ríkislaunum að heimta uppihald, forgang að velferðaþjónustu og íslenskt ríkisfang handa fólki sem tæplega á erindi til Íslands.
Áður en ráða þarf þungvopnaða öryggisverði við grunnskóla höfuðborgarinnar væri kannski ráð að upplýsa almenning um uppruna óværunnar sem herjar á skólastarfið? Tökum Dani til fyrirmyndar og skráum skipulega landfræðilegan og menningarlegan uppruna ofbeldismanna. Í framhaldi mætti móta útlendingastefnu sem ekki er tilræði við frið og sátt íslensks samfélags.