Djúp haustlægð gekk yfir landið með látum í gær og nótt, með stormi, rigningu og hríð. Síðustu viðaranir féllu úr gildi í morgun, vegna hríðar á landinu norðaustanverðum, vetrarfærð er enn á vegum víða um landið.
Veðurhamurinn virðist hafa verið einna mestur nyrst á Tröllaskaga. Mikið tjón varð á eignum á Siglufirði, þök rifnuðu af húsum, rúður brotnuðu og björgunarsveitir höfðu vart undan að festa brak og lausamuni. Fyrir þann landshluta var gefin úr gul veðurviðvörun.
Kristín Björg Ólafsdóttir, sérfræðingur í veðurfarsrannsóknum á Veðurstofunni, segir veðrið heilt yfir að hafa verið í takt við spár.
Sjávarflóð ollu ekki eins miklum vandræðum og óttast var
„Mesti vindhraðinn á landinu mældist 42,0 m/s á Stórhöfða, það var mjög hvasst í Vestmannaeyjum þarna fyrst um morguninn og mesta hviða mældist 56,9 m/s á stöð Vegagerðarinnar á Hvammi undir Eyjafjöllum.“
Einhverjir höfðu áhyggjur af sjávarflóðum, slapp það að einhverju leyti betur en þið höfðuð óttast?
„Já það slapp, virðist hafa sloppið ágætlega til. Það er kannski einna helst í Vík í Mýrdal sem flæddi að húsum og eitthvað yfir vegi þar.“
Æskilegt að fá fleiri eða betri mælitæki nyrst á Tröllaskaga
Mesti vindhraði á viðurkenndum mælum Veðurstofunnar á Siglufirði í gær var 20,9 metrar á sekúndu og hviður fóru upp í 40 metra.
Flókið landslag og veður mjög staðbundið
Veðurákefðin virðist hafa komið viðbragðsaðilum að óvörum í gær. Kristín segir að verið sé að skoða hvort hefði átt setja hærra viðvörunarstig á Norðurland eystra.
„Það er náttúrlega alltaf eftir hvert veður skoðað vel hvernig tókst til þannig að það getur alveg verið að það verði metið svo,“ segir Kristín. „Þetta er mjög flókið landslag, mikið af bröttum fjöllum og þá er veðrið mjög staðbundið. Það væri auðvitað mjög æskilegt að hafa fleiri veðurmæla þar, það er engin spurning.“
Hviðurnar ekki 40 metrar á sekúndu heldur nær 57 metrum
Heimamönnum þykja tölur um vindhraða sem sáust á mælum Veðurstofunnar ekki í takt við það sem gekk á í bænum í gær.
Sigurbjörn Þorgeirsson, aðalvarðstjóri á Tröllaskaga, hefur staðið vaktina í vettvangsstjórn á Siglufirði í óveðrinu og ræddi stöðuna í beinni í hádegisfréttum;
„Miðað við það sem ég heyri með veðurmælana þá vorum við heppin að vera með varðskipið Freyju hérna í höfninni og þeir eru með viðurkennda vindmæla um borð,“ segir Sigurbjörn. Hann hefur eftir stýrimanni á Freyju að þeirra mælar hafi sýnt vindhviður ná nærri 57 metrum á sekúndu.
„Þetta voru aðallega þrjú hús sem þök fuku af að hluta eða að öllu leyti og þau ollu skemmdum á öðrum eignum í kring,“ segir Sigurbjörn. Þau séu enn að meta eignatjón og á næstu dögum verði lokið við hreinsunarstarf og að tryggja skemmd hús í bænum.