Ferðamenn komust í hann krappan í Reynisfjöru síðdegis í gær eftir að stór alda lenti á þeim. Viðbragðsáætlun var í kjölfarið virkjuð í Reynisfjöru vegna veðursins. Lokað var fyrir aðgengi að hluta strandarinnar og gæsla komin á vettvang.
„Við biðlum til ferðaþjónustuaðila og leiðsögufólks að brýna fyrir gestum sínum að virða merkingar og fara ekki yfir bönd og keðjur. Hægt er að ganga vestar eftir fjörunni og þar er góður útsýnisstaður yfir stuðlabergið og Reynisdranga,“ segir í tilkynningu frá landeigendum.
Íris Guðnadóttir, fulltrúi landeigenda, segir að núna sé fyrr flóð dagsins að mestu gengið niður og þau meti hvort að böndin verði tekin niður eftir daginn.
Hættulegar aðstæður
Oft og tíðum hefur verið fjallað um hættulegar aðstæður sem geta skapast í Reynisfjöru. Fjöldi myndskeiða er til af ferðamönnum sem lenda í öldunum en landeigendur hafa sett upp viðvörunarskilti í því skyni að vara ferðamenn við hættunum sem kunna að skapast.
Þrátt fyrir það kemur það ítrekað fyrir að ferðamenn fari fram hjá hliðum og viðvörunarskiltum og virði þau að vettugi.
Níu ára gömul stúlka frá Þýskalandi lést eftir að hafa farið í sjóinn við Reynisfjöru í ágúst árið 2025. Einnig lést erlendur karlmaður á áttræðisaldri sumarið 2022 þegar alda hreif hann með sér út í sjó.
Fréttin hefur verið uppfærð klukkan 13.34.