Þingmaðurinn Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar, samkvæmt heimildum fréttastofu. Samkvæmt sömu heimildum er aðdragandi að þessari ákvörðun Jóns. Vísir sagði fyrst frá því að Jón Gnarr væri að segja skilið við Viðreisn.
Fréttastofa hefur ekki náð tali af honum.
Viðbúið er að forseti Alþingis, tilkynni um úrsögn Jóns Gnarr úr Viðreisn við upphaf þingfundar.
Jón Gnarr er þá annar þingmaður stjórnarflokkanna til að segja skilið við þann flokk sem hann var kjörinn á þing fyrir. Guðmundur Ingi Kristinsson sem var kosinn á þing fyrir Flokk fólksins sagði sig úr flokknum. Hann styður enn stjórnina.
Stjórnarflokkarnir fengu samanlagt 36 þingsæti í kosningunum 2024. 32 þingmenn þarf til að hafa meirihluta á þingi. Brottsagnir Jóns og Guðmundar fella því ekki stjórnina en minnka meirihluta hennar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek, formaður þingflokksins, og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra svöruðu ekki símtölum þegar fréttastofa reyndi að ná tali af þeim. Þau skelltu á án þess að svara.
Fréttin hefur verið uppfærð.