Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, og óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á honum.
Halldór er brúnhærður og með skegg, grannvaxinn og um 183 sentímetrar á hæð.
Þau sem geta veitt upplýsingar um ferðir Halldórs eða vita hvar hann er að finna eru beðin um að hafa tafarlaust samband við lögregluna í síma 112.
