Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður ræddi við Jón Gnarr rétt í þessu um úrsögn hans úr þingflokki Viðreisnar.
„Það er bæði pólitískt og skipulagslegt. Ég er ekki alltaf sammála forgangsröðun mála og þetta er búið að vera langur tími sem ég er búinn að vera að hugsa þetta og skoða möguleika mína. Þetta er líklega ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið en ég er skuldbundinn af stjórnarskrá Íslands til að fylgja sannfæringu minni. Mér finnst ég ekki geta vikist undan því. Ég get ekki logið að sjálfum mér um að ég eigi ekki að gera það.“
Aðspurður hvort þetta sé til marks um ósætti hans við forystuna eða þingflokkinn svaraði Jón:
„Ég er bara ekki alveg sammála. Ég kem inn í þetta samstarf með ákveðnar væntingar um ákveðnar aðgerðir og þá sérstaklega í málefnum barna í flóknum vanda, alvarlegum vanda. Ég hef beitt mér mjög persónulega í því. Ég vildi að það væri ofar á forgangslista þingflokksins og ég hef viljað fá það framar, ofar, á forgangslistann en það hefur kannski ekki verið nægilega ofarlega finnst mér. Frelsismál sem eru mér mjög kær, einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi, ég er ósáttur við það.“
Jón tekur þó fram að sér hafi liðið mjög vel í samstarfinu og að hann sé gríðarlega stoltur af ríkisstjórninni.
„Mér finnst algjör heiður og forréttindi að fá að vera hluti af þessari ríkisstjórn af því að mér finnst hún vera að gera sögulega hluti. Það er með glerbrot í hjarta sem ég tek þessa ákvörðun og ég get ekki vikist undan henni.“
Jón Gnarr birti færslu á Facebook þar sem hann segir frá úrsögn sinni úr þingflokki Viðreisnar.
„Þetta er einhver þyngsta og erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu en í samræmi við 48 grein Stjórnarskrár Íslands,“ skrifar Jón. „Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir; málefnum barna í alvarlegum vanda og einstaklingsfrelsi.“
Það er óhætt að segja að óvenjuleg staða sé komin upp á Alþingi.
Stjórnarflokkarnir þrír fengu samtals 36 þingmenn kjörna í Alþingiskosningum í nóvember 2024. Af þeim hefur einn sagt sig úr sínum gamla flokki og annar hefur sagt sig úr þingflokki síns flokks en verður áfram flokksbundinn.
Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig úr Flokki fólksins vegna óánægju með hvernig Inga Sæland, formaður flokksins, brást við veikindaleyfi hans sem varð til þess að Guðmundur Ingi varð að hætta sem ráðherra.
Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar en er áfram félagi í Viðreisn og styður ríkisstjórnina.
Því má segja að 36 þingmenn styðji ríkisstjórnina, 35 þeirra séu flokksbundnir í einhverjum stjórnarflokkanna þriggja og að 34 séu í þingflokkum þeirra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, birti færslu á umræðuvettvangi Viðreisnar á Facebook. Þar sagði hún virða ákvörðun Jóns um brotthvarf en syrgja brotthvarf hans úr þingflokknum. „Það er þó gott til þess að vita að hann ætli áfram að vera félagi í Viðreisn.“
Miðað við skrif Þorgerðar virðist sem úrsögn Jóns snúist að einhverju leyti um starfshætti, ákvörðunartökur og hvernig hægt sé að bæta starfið. Hún segist taka slíkum ábendingum alvarlega og að Jón hafi meðal annars leitt mikilvæga vinnu í stefnumótunar og strategíuhópi til að bregðast við slíkum ábendingum.
Jón Gnarr gerði stuttlega grein fyrir úrsögn sinni úr þingflokki Viðreisnar við upphaf þingfundar. Hann sagðist hafa reynt það í lífinu að standa fyrir máli sínu og horfast í augu við fólk.
„Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg. Hún var ekki tekin nema eftir langa og vandlega umhugsun. Eins og stjórnarskráin skyldar mig til að gera þá fylgi ég sannfæringu minni.“
Hann tiltók þó ekki hvers vegna hann hefði sagt sig úr þingflokknum.
Bryndís Haraldsdóttir, fyrsti varaforseti Alþingis, tilkynnti rétt í þessu að Jón Gnarr hefði tilkynnt sér að hann hefði sagt sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann tjáði að hann myndi áfram styðja ríkisstjórnina í „hennar mikilvæga starfi til sjávar og sveita“.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggst Jón Gnarr áfram styðja ríkisstjórnina þó að hann segi sig úr þingflokki Viðreisnar. Sé svo þá gerir hann það sama og Guðmundur Ingi Kristinsson sem sagði sig úr Flokki fólksins en styður enn ríkisstjórnina.
Jón Gnarr verður gestur Bergsteins Sigurðssonar í Kastljósi í kvöld. Þar fer hann yfir ákvörðun sína um úrsögn úr þingflokki Viðreisnar og hvernig hann hyggst starfa í stjórnmálum í framhaldinu.
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka sem sagði sig úr þingflokki Flokks fólksins fyrr á árinu, en styður ríkisstjórnina, segir að það sé hans skilningur að Jón Gnarr hafi sagt sig úr Viðreisn.
„Já það skilst mér,“ segir hann aðspurður.
Hann kveðst ekki vita af hverju.
Ætlið þið að stofna þingflokk saman?
„Við erum orðnir tveir, við gætum gert það.“
Góðan dag og velkomin á fréttavakt um stjórnmálin. Jón Gnarr hefur ákveðið að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, samkvæmt heimildum fréttastofu. Búist er við því að hann geri grein fyrir ákvörðun sinni við upphaf þingfundar klukkan hálf tvö. Hann verður aðgengilegur í beinni útsendingu efst í fréttavaktinni.