Jón Gnarr er hættur í þingflokki Viðreisnar. Þetta hefur Vísir eftir heimildum sínum. Úrsögn Jóns hefur ekki úrslitaáhrif á meirihluta ríkisstjórnarinnar á þingi. Til að mynda meirihluta þarf 32 þingmenn, með brotthvarfi Jóns verða þeir 35. Fyrr á þessu kjörtímabili sagði Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður og fyrrverandi ráðherra sig úr Flokki fólksins en tók fram að hann styddi ríkisstjórnina áfram.
Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn