Fransk-kanadíska söngkonan Céline Dion hefur verið heiðruð með Barbie-dúkku sem gerð er í hennar líki, í kjölfar sigursæls árs fyrir Céline. Greint var frá dúkkunni á samfélagsmiðlum Barbie á miðvikudag. Dúkkan líkir eftir útliti Céline frá Óskarsverðlaunahátíðinni árið 1998, en þar söng hún lagið My Heart Will Go On úr kvikmyndinni Titanic og hlaut verðlaun fyrir besta frumsamda lagið.
Aðdáendur ekki sáttir við Barbiedúkku í líki Céline Dion