Swank greindi frá tíðindunum með myndbandi á Instagram þar sem mátti sjá Schneider dansa með tvíburunum í myrkrinu með glitstangir (e. glow sticks) áður en Swank birtist í mynd með óléttubumbuna og útlínur lítils barns á maganum.
„Margir hafa verið að spyrja hvað verkefni ég er að vinna í næst, þetta kemur út í desember,“ skrifaði Swank við færsluna.
Swank varð móðir í fyrsta sinn 48 ára gömul þegar hún eignaðist tvíburana Ayu og Ohm í apríl 2023. Hún hafði fryst egg sín ellefu árum fyrr til að geta eignast börn síðar á lífsleiðinni meðan hún einbeitti sér að leiklistarferlinum.
„Það atvikaðist þannig að ég eignaðist börn mun seinna á lífsleiðinni,“ sagði Swank um barneignirnar í viðtali við People fyrir nokkrum árum.
„Það var ekki að ég vildi ekki eignast þau fyrr. Það var svo margt sem kom í veg fyrir það og núna get ég virkilega nýtt tímann til að vera með þeim.“
Swank hefur átt farsælan 35 ára feril í Hollywood og er þekktust fyrir kvikmyndirnar Boys Don't Cry (1999) og Million Dollar Baby (2004) en hún hlaut Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í þeim báðum.