Við gerum einnig upp tíðindi af óveðri og förum yfir stöðuna, en veðurhamurinn sem skall á landinu í gær er genginn niður og allar veður viðvaranir fallnar úr gildi. Tíðindalítið var hjá viðbragðsaðilum í gærkvöldi og nótt, en nokkuð snjóaði bæði fyrir vestan og norðan.
Við lítum einnig á þing ASÍ, en það ræðst í dag hvort varaforsetum ASÍ verði fækkað úr þremur í einn líkt og lagt hefur verið til. Formenn Eflingar og VR gefa kost á sér í sama embætti og mikil spenna er í loftinu á þingi sambandsins sem stendur nú yfir.
Þá beinum við augunum til Svíþjóðar en tillaga um Magdalenu Andersson sem forsætisráðherra landsins var felld með miklum meirihluta í sænska þinginu í morgun. Óljóst er hver mun næst fá umboð til stjórnarmyndunar en ljóst er að stjórnarkreppa er í landinu. Smári Jökull fréttamaður fer yfir málið en hann var búsettur í Svíþjóð og fylgist vel með gangi mála þar í landi.
Og svo var slæmt veður víðar en á Íslandi. Við ræðum við ferðalang sem staddur var í Tyrklandi í gær þegar úrhelli olli því að götur breyttust nánast í árfarvegi og bílar flutu um hreinlega eins og skopparakringlur.
Fjölbreyttur hádegisfréttatími á Bylgjunni á slaginu tólf.