Blómum prýddir vöruflutningabílar með fánaveifur á húddinu óku áleiðis til Kína í dag frá Norður-Kóreu þegar ný brú milli landanna var opnuð við mikla viðhöfn.
Með tilkomu hennar verður til ný lífæð í ríkisrekstri hinnar einangruðu Norður-Kóreu, sem reiðir sig mjög á samstarf og viðskipti við þennan risavaxna granna sinn.
Smíði brúarinnar tók um 12 ár og opnunarinnar í dag hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu í bænum Dandon, skammt frá landamærunum að Norður-Kóreu.
Brúin þverar ána Yalu-á og er rétt ríflega 3 km löng. Á henni eru fjórar akreinar, tvær í hvora átt.
„Nú þegar hún er loksins opin eru allir mjög ánægðir. Við erum búin að bíða í 12 ár,“ sagði einn íbúi í Dudong við fréttaritara AFP.
Fjöldi fólks keypti sér fasteign í Dudong og flutti þangað árið 2014, þegar brúarsmíðin var langt komin, í von um að nýja brúin myndi hækka húsnæðisverð þar í kring og bera með sér atvinnutækifæri og betri lífskjör.
Svo varð þó ekki vegna sífelldra tafa Norður-Kóreumegin, einkum og sér í lagi hvað tollafgreiðslu varðar og vegagerð til brúarinnar. Landamærum Norður-Kóreu var svo harðlokað í kórónuveirufaraldrinum og opnun brúarinnar tafðist í kjölfarið.
Lim Eul-chul, sérfræðingur í Norður-Kóreu við Kyungnam-háskóla í Seúl í Suður-Kóreu, segir að brúin geri hvers kyns vöruflutninga milli Kína og Norður-Kóreu mun auðveldari og geti leitt af sér þreföldun og jafnvel fjórföldun á vöruflutningi milli ríkjanna. Þá gæti þetta glætt ferðamennsku milli ríkjanna nýju lífi.