Kaupsamningurinn var undirritaður 20. ágúst síðastliðinn og fékk kaupandinn eignina afhenta sama dag. Ásett verð var 89,9 milljónir króna en eignin seldist 5,5 prósentum undir því.
Um er að ræða 152,3 fermetra eign sem var byggð árið 2007, skiptist í 127,3 fermetra aðalhús og 25 fermetra gestahús og stendur á fimm þúsund fermetra leigulóð við Stangarbraut í Öndverðarnesi.
Aðalhúsið skiptist í forstofu, stofu og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi. Gestahúsið er tilbúið til innréttinga með geymslu í bakhluta fyrir golfbíl. Lóðin er gróin með stóru bílaplani, í kringum húsið er timburlögð verönd með heitum potti og við húsið er afgirtur fótboltavöllur með gervigrasi.
Sumarbústaðurinn stendur innan lokaðs sumarhúsasvæðis og hafa eigendur sumarhúsa á svæðinu aðgang að átján holu golfvelli, golfskála sem hægt er að leigja og sundlaug.
Samkvæmt kaupsamningnum fylgja öll húsgögn, golfbíll og kerra undir hann með í kaupunum og eru einungis persónulegir munir seljanda undanskildir því.