Borkjarnar í Vestmannaeyjum og í Landeyjasandi þar sem til stendur að bora fyrir Eyjagöngum eru mun betri en við var búist að mati norska sérfræðingsins Eivinds Grøv sem Eyjagöng fengu til ráðgjafar.
„Það eru bara talsvert betri aðstæður en við þorðum að vona. Það sem var talið að væru setlög er setberg og þetta samsvarar sér mjög mikið á báðum borstöðum þar sem við gerðum bæði borun í Eyjum og á Landeyjasandi,“ segir Haraldur Pálsson, framkvæmdastjóri Eyjaganga.
Mælingar voru gerðar á hafsbotninum milli lands og Eyja í sumar og von er á fýsileika- og kostnaðarmati vegna Eyjaganga öðru hvoru megin við áramót.
„Í sumar fórum við með Landhelgisgæslunni og Baldur sá um að draga búnað sem ÍSOR var með og sérfræðingar ÍSOR stýrðu verkefninu í hafbotnsmælingum. Núna er ÍSOR að vinna úr þessum hafbotnsmælingum og fara yfir gögnin,“ segir Haraldur.
„Næstu skref eru svo að Norkonsult annars vegar og Efla og Völuberg hins vegar gera fýsileika- og kostnaðarmat á öllum gögnunum sem við höfum aflað í sumar og við væntum þess að það verði klárt öðru hvoru megin við nýja árið.“