Brasilískur múrari ferðaðist yfir tvö þúsund kílómetra leið til þess að hitta draumadísina sína. Svo komst hann að því að hún var búin til úr gervigreind.Breska blaðið Manchester Evening News greinir frá þessu.Edimar Rocha Martins, 49 ára múrari, taldi sig hafa fundið ástina á netinu en hún reyndist vera tálsýn. Ferðaðist hann meira en tvö þúsund kílómetra leið með rútu til að hitta hana.Edimar fann „konu“ á netinu sem kallaði sig Jessica Oliveira. Hún bauð karlmönnum að koma og búa með sér á búgarði. Var hún með 300 þúsund fylgjendur á samfélagsmiðlum.
Einmana múrari ferðaðist tvö þúsund kílómetra til að hitta draumadísina – En þá kom sannleikurinn í ljós