„Fyrst og fremst er það fólkið sjálft sem ber ábyrgð á eigin öryggi. Þannig virkar það. En auðvitað komum við öll að,“ segir Dagbjartur Kr. Brynjarsson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu.
Mikil ölduhæð var í Reynisfjöru í gær. Nokkrir, meðal annars barn, fengu yfir sig sjó. Landeigandi sagði að fólkið hefði verið það ofarlega í fjöruborðinu að engin hætta hefði verið á að það skolaðist út.
Viðbragðsáætlun var virkjuð vegna ölduhæðar og fjörukambi austast í fjörunni lokað.
Ýmsar öryggisráðstafanir voru gerðar eftir banaslys í fjörunni í ágúst í fyrra. Meðal annars er bannað að fara niður að stuðlabergi þegar rautt ljós blikkar og lokunarhlið var sett í fjörukambinn.
Dagbjartur telur að ráðstafanirnar dugi. Honum skilst að í gær hafi sjórinn komið að fyrr en öldufarsspá gerði ráð fyrir.
„Þegar þetta gerist eru landeigendur í þann mund að loka. Þeir eru að undirbúa lokunina á ströndinni og var svo lokað þarna eiginlega strax í kjölfarið og það er í raun og veru það sem hægt er að gera.“
Samkvæmt tilkynningu frá landeigendum við Reynisfjöru í dag er sjávarstaða enn há. „Til að gæta öryggis hafa verið settar upp keðjur og bönd sem afmarka hve langt fólk má fara út á fjörukambinn.“
„Þetta er ekki sérlega fallegt atvik. Ég skal alveg játa það. Það er ekki gott þegar fólk fer svona nálægt fjörunni,“ segir Dagbjartur um það sem skeði í gær.
Hann segir að draga megi lærdóm af því en bætir við að það sé mikilvægt að muna að í fjörunni eru mörg skilti sem vara við hættu.
„Landeigendur hafa tekið að sér að vera með stýringu og halda úti lokun þarna þegar ölduspá segir til um en þeim ber engin skylda til þess. Þetta er fólk sem býr þarna og er að gera þetta að eigin frumkvæði.“
Hann leggur áherslu á það að fólk fylgi stýringum, hvar sem þær eru. „Það er yfirleitt ástæða fyrir stýringum,“ segir Dagbjartur.