Breytingar eru fram undan hjá Landsvirkjun því fyrirtækið þarf ekki aðeins að ráða nýjan forstjóra heldur varð ljóst í dag að einnig þarf að ráða nýjan fjármálastjóra.
Rafnar Lárusson, sem hefur verið fjármálastjóri Landsvirkjunar síðustu 16 árin, greindi samstarfsfólki sínu frá því í dag að hann hyggist láta af störfum. Tilkynningin birtist á innri vef fyrirtækisins og á Linkedin-síðu hans.
„Ástæðan er sú að fyrir nokkrum árum tók ég þá ákvörðun að hætta um leið og Hörður. Mér finnst eðlilegt að gefa nýjum forstjóra þannig færi á að velja sér fjármálastjóra, rétt eins og Hörður gerði á sínum tíma.“
Rafnar var ráðinn fjármálastjóri Landsvirkjunar í september 2010, nokkrum mánuðum eftir að Hörður var ráðinn forstjóri.
„Ég vildi láta ykkur vita af þessari ákvörðun, þótt ég sé ekki á leið úr húsi alveg strax. Það þarf enn að klára fjárhagsáætlun og ársreikning svo eitthvað sé nefnt. Ég er ekki búinn að ráða mig annað svo nú hefst leit að öðru starfi meðfram frágangnum hér. Það gefst því nægur tími fyrir þá sem vilja þiggja að fá eitt knús eða svo.“