Úkraínuher réðst á olíuhreinsistöð í Ryazan, suður af Moskvu, í nótt.
Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, sagði í viðtali við Financial Times að stjórn sín hefði ákveðið að hefja aftur árásir á orkuinnviði í Rússlandi. Hann sagði að vopnahléið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti yfir þegar kæmi að árásum á orkuinnviði hefði ekki haldið, Rússar hefðu haldið árásum sínum áfram.
Zelensky sagði að Úkraínumenn hefðu hætt árásum í marga daga þrátt fyrir að Rússar sökuðu þá um árásir á orkuinnviði.
Zelensky sagði í viðtalinu við Financial Times að það hefði verið meðvituð ákvörðun Bandaríkjamanna sem hefði orðið til þess að þeir fengu ekki viðvaranir um yfirvofandi árásir Rússa í fyrrinótt. Hann sagði að það væri ekki hægt að rekja til tæknilegra vandamála.
Úkraínski forsetinn sagði það hættulegt að Bandaríkjamenn hættu að deila upplýsingum með Úkraínu.
Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda, svaraði og sakaði Úkraínumenn um að vinna gegn friðarferlinu með árásum sínum á rússneska orkuinnviði. Hann sagði að með árásum sínum settu Úkraínumenn sig upp á móti tilraunum Bandaríkjanna til að koma á friði.
Rússar höfðu ekki samþykkt að gera hlé á árásum á orkuinnviði og höfðu sjálfir ráðist á slíka innviði í Úkraínu, meðal annars með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð hjá um 600 þúsund Úkraínumönnum í gær.