Páll Vilhjálmsson telur að vaxandi ofbeldi í grunnskólum Reykjavíkur tengist innflytjendum og vill að uppruni gerenda verði skráður skipulega. Hann kallar eftir nánari upplýsingum og spyr hvort hælisleitendur frá ólíkum menningarsvæðum eigi í hlut.
Þetta kemur fram í bloggfærslu Páls sem birtist í dag undir yfirskriftinni „Innflutt ofbeldi í grunnskólum“. Tilefnið er fundargerð skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar frá 12. október, þar sem lýst er áhyggjum af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Uppruni gerenda er ekki tilgreindur í fundargerðinni.
„Á milli línanna má lesa að ofbeldið sé innflutt“
Páll telur að skýringar vanti á þróuninni og skrifar:
„Hér vantar nánari útskýringar. Varla eru dæmigerðir íslenskir nemendur og foreldrar þeirra orðnir ofbeldishneigðir fram úr hófi og kunna ekki lengur að hemja sig í daglegri umgengni.“
Hann dregur síðan þá ályktun að ofbeldið tengist fólki sem flust hefur til landsins:
„Á milli línanna má lesa að ofbeldið sé innflutt. Helstu gerendur séu nýbúar hér á landi.“
Í fundargerðinni segir áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara að einstaklingar eða hópar hafi á síðustu vikum ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki. Brýnt sé að kortleggja skólabyggingar með tilliti til öryggis. Ráðið leggur jafnframt áherslu á forvarnir, stuðning við starfsfólk og aðgangsstýringu í húsnæði þar sem börn dvelja.
Spyr hvort hælisleitendur eigi í hlut
Páll greinir á milli komu Evrópumanna til Íslands í kjölfar EES samningsins og komu hælisleitenda á síðari árum. Hann heldur því fram að fjölgun Evrópumanna hér á landi hafi ekki leitt til aukins ofbeldis og spyr hvort skýringanna sé fremur að leita í komu hælisleitenda frá öðrum menningarsvæðum.
Hann gagnrýnir jafnframt íslenska útlendingastefnu harðlega og sakar stjórnvöld um að hafa haft landið of opið fyrir hælisleitendum. Þá beinir hann spjótum sínum að lögfræðingum sem reka mál þeirra og kröfum um uppihald, velferðarþjónustu og ríkisfang.
Vill taka Dani til fyrirmyndar
Páll vísar til skráningar Dana á uppruna fólks sem gerist brotlegt við lög og telur að íslensk stjórnvöld eigi að fara sömu leið.
Hann spyr hvort ekki sé ráð að upplýsa almenning betur áður en grípa þurfi til þess að ráða „þungvopnaða öryggisverði“ við grunnskóla höfuðborgarinnar og lýkur færslunni á skýrri áskorun:
„Tökum Dani til fyrirmyndar og skráum skipulega landfræðilegan og menningarlegan uppruna ofbeldismanna. Í framhaldi mætti móta útlendingastefnu sem ekki er tilræði við frið og sátt íslensks samfélags.“