Jón Gnarr segist ekki hafa séð aðra leið en að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir bæði pólitískar og skipulagslegar ástæður fyrir ákvörðun sinni. Jón verður samt áfram flokksfélagi í Viðreisn, gegnir áfram nefndarstörfum fyrir flokkinn og styður ríkisstjórnina.
„Ég er ekki alltaf sammála forgangsröðun mála og þetta er búið að vera langur tími sem ég er búinn að vera að hugsa þetta og skoða möguleika mína. Þetta er líklega ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið en ég er skuldbundinn af stjórnarskrá Íslands til að fylgja sannfæringu minni. Mér finnst ég ekki geta vikist undan því. Ég get ekki logið að sjálfum mér um að ég eigi ekki að gera það.“
Hann segist hafa komið inn í þingstörfin með ákveðnar væntingar, sérstaklega um ákveðnar aðgerðir, sérstaklega í málefnum barna í flóknum vanda.
„Ég hef beitt mér mjög persónulega í því. Ég vildi að það væri ofar á forgangslista þingflokksins og ég hef viljað fá það framar, ofar, á forgangslistann en það hefur kannski ekki verið nægilega ofarlega finnst mér. Frelsismál sem eru mér mjög kær, einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi, ég er ósáttur við það.“
Úrsögnin úr þingflokknum breytir ekki afstöðu Jóns til ríkisstjórnarinnar.
„Mér finnst algjör heiður og forréttindi að fá að vera hluti af þessari ríkisstjórn af því að mér finnst hún vera að gera sögulega hluti. Það er með glerbrot í hjarta sem ég tek þessa ákvörðun og ég get ekki vikist undan henni.“
„Ég gefst ekki upp. Ég klára það sem ég byrja á og fylgi því eftir sem ég trúi. Ákvarðanir sem ég tek: ég fylgi þeim eftir. Mér leiðist líka hálfkák. Einhver hefði kannski tekið þá ákvörðun að hafa hægt um sig og þegja, svo einn daginn væri þetta búið og láta sig þá hverfa. Ég er ekki þannig maður.“