Trump hættir við að streyma aftökunni
Forseti Bandaríkjanna bregst við andstöðu við umdeildum áformum Pete Hegseth varnarmálaráðherra um að streyma aftöku í beinni útsendingu. Trump tekur um leið fram að það hefði haft fælingarmátt að sýna aftökuna og að ástvinir fórnarlambanna geti verið viðstaddir.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í dag að aftöku manns, sem dæmdur var fyrir fjöldamorð í bandarískri herstöð, verður ekki streymt í beinni útsendingu.
Með ákvörðuninni fellir Trump úr gildi umdeild áform Pete Hegseth varnarmálaráðherra. Áformin um að sýna aftöku Nidals Hasan í beinni útsendingu höfðu sætt harðri andstöðu bæði innan Bandaríkjanna og á alþjóðavettvangi. Þau vöktu meðal annars reiði stjórnmálamanna úr röðum bæði demókrata og repúblikana, kaþólsku kirkjunnar, mannréttindasamtaka og Sameinuðu þjóðanna.
Ákvörðunin er áfall fyrir Hegseth, sem hefur þegar sætt mikilli gagnrýni vegna stríðsins við Íran, sem er komið í pattstöðu, og afleiðinga þess. Ástandið hefur veikt stöðu Repúblikanaflokksins fyrir komandi þingkosningar.
Hasan „verður tekinn af lífi, eins og áætlað var, af aftökusveit, en aftökunni verður ekki streymt,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.
„Ef heimurinn fengi að sjá hvernig Bandaríkin taka á hryðjuverkamönnum og VIÐBJÓÐI á borð við Hasan“
Forsetanum virtist þó …