Gadi Eisenkot, helsti keppinautur Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra í komandi þingkosningum í Ísrael, heitir því að binda endi á yfirráð Hamas-samtakanna yfir Gaza á 18 mánuðum, beri hann sigur úr býtum.
Eisenkot kveðst ætla að gera það með því að annað hvort beita Ísraelsher með „frumlegri hætti“ en áður gegn hernaðararmi Hamas, eða með því að byggja á vopnahlésáætlunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem kveða á um afvopnun samtakanna.
„Í dag heiti ég almenningi þessu: Frá því að ég stíg fæti á forsætisráðherraskrifstofuna líða ekki 18 mánuðir þar til Hamas stýra Gaza ekki lengur,“ sagði Eisenkot á blaðamannafundi Yashar-flokksins.
Yashar-flokkurinn, flokkur Eisenkots, er miðjuhægriflokkur og í nýlegri könnun var honum spáð 23 þingsætum en Likud-flokki Netanjahús 20. Kannanir fyrir kosningarnar 27. október eru þónokkuð á reki.
Hamas tilkynnti í júlí að samtökin væru að leysa upp stjórnmálaarm og víkja í leiðinni fyrir teknókratískri nefnd, NCAG, sem fara á með daglega stjórn á Gaza. Síðar í mánuðinum tilkynntu þau að náðst hefði samkomuleg um afhendingu allra vopna Hamas til handa nefndinni. Ísraelsk stjórnvöld hafa þó verið efins og krafist sannana um það. Ekki hefur enn orðið af því að Hamas láti vopn af hendi. Samtökin kenna því um að Ísraelsher hafi ekki fengist til að hörfa eins og samningar áttu að kveða á um.
Rétt ríflega þrjú ár eru liðin síðan Hamas gerði hryðjuverkaárás á Ísrael með þeim afleiðingum að um 1.200 manns voru drepnir og 251 tekinn í gíslingu. Hernaður Ísraels í kjölfarið, sem enn sér ekki almennilega fyrir endann á, hefur haft í för með sér að ríflega 74 þúsund íbúar Gaza hafa verið drepnir.