Kópavogsbær ætlar að sækja fullar heimtur vegna vanefnda vertakafyrirtækis við byggingu Barnaskóla Kársness. Kröfurnar hljóða upp á 3,9 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bænum en málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs í dag.
Kostnaður Kópavogsbæjar af Barnaskóla Kársness nálgast níu milljarða króna sem er töluvert yfir upprunalegri kostnaðaráætlun.
Kópavogsbær samdi við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher árið 2021 um endurbyggingu skóla við Skólagerði. Skólinn heitir í dag Barnaskóli Kársness og er samrekinn leik- og grunnskóli.
Innri kostnaðaráætlun Kópavogsbæjar fyrir heildarverkefnið nam í júní 2020, þegar ákveðið var að ráðast í verkefnið, um 4,8 milljörðum króna sem er að núvirði um 6,7 milljarðar. Þá nam verksamningsupphæðin 3,2 milljörðum króna og átti að ljúka verkinu 15. maí 2023. Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að fyrir utan samning Rizzani hafi verið ýmis kostnaður við búnað í skólanum, vinnu hönnuða, umsjón, byggingarstjórn og fleira. Heildarkostnaður Kópavogsbæjar nemur, nú þegar verkinu er lokið, um 8,7 milljörðum króna.
Umfangsmiklir gallar í verkinu
Kópavogsbær rifti verksamningi við Rizzani í maí 2023 vegna alvarlegra vanefnda. Þá átti að vera komið að skilum á verkinu en það var þó einungis hálfnað. Verktakinn hafði þá fengið greidda um tvo milljarða króna á núvirði. Auk tafanna hafði Kópavogsbær verulegar áhyggjur af gæðum verksins en mannvirkið hafði staðið opið fyrir veðri og vindum. Einnig lá fyrir að undirverktakar höfðu lagt niður störf. Gallar á verkinu reyndust umfangsmiklir og leiddi það einnig til mikilla tafa. Byggingartíminn, sem átti að vera rúm tvö ár, varð að fimm árum með tilheyrandi óhagræði og kostnaði.
Kópavogsbær hefur síðustu mánuði tekið saman kröfugerð og gögn vegna þess viðbótarkostnaðar sem féll til vegna verktakaskipta, tafa og stórfelldra galla á verkinu. Kröfugerðin liggur fyrir og var kynnt fyrir gerðardómi og bæjarráði í vikunni. Hún nemur í heild sinni tæpum 3,9 milljörðum króna sem Kópavogsbær krefst að verktakinn greiði að fullu.
„Kópavogsbær brást við alvarlegri stöðu í framkvæmdum við nýjan grunnskóla þegar ljóst varð að ekki var lengur hægt að una við ítrekaðar og alvarlegar vanefndir verktakans. Gerðardómur hefur staðfest að riftun samningsins hafi verið lögmæt og næsta skref er að sækja fullar bætur vegna málsins. Í dag stendur glæsilegur grunnskóli sem uppfyllir gæðakröfur okkar og hefur skólastarf þar gengið vel frá því það hófst haustið 2025. Við erum afar ánægð með að nemendur, foreldrar og starfsfólk hafi tekið nýrri skólabyggingu vel,“ er haft eftir Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi, í tilkynningunni.
Minnihlutinn krefst svara
Á fundi bæjarráðs í morgun var málið meðal annars tekið fyrir. Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir málið vera klúður sem verði að skoða nánar. Kostnaðaráæltun sé rúmlega tvöföld.
„Fullyrða má að Barnaskóli Kársness sé dýrasti grunnskóli landsins, ekki að íburðum heldur vegna klúðurs í framkvæmd. Klúðrið er fyrst og fremst verktakans en öll kurl eru ekki komin til grafar í þessu máli og fullt tilefni til þess að líta aftur um farinn veg og meta hvort ekki hefði verið hægt að gera betur, hvort sem það er við gerð útboðsgagnanna, hönnun, eftirlit með framkvæmdunum, ákvarðanatöku í kjölfar riftunar og svo mætti lengi áfram telja. Ég hef til að mynda enn ekki fengið svör á því hvernig verktakarnir sem tóku við framkvæmdunum eftir riftun verksamningsins, og velt hafa milljörðum í bókhaldi bæjarins, hafi verið valdir,“ skrifar Jónas á Facebook.
María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar í Kópavogi, segir Kópavogsbúa eiga rétt á svörum.
„Nú þegar framkvæmdinni er nær lokið og kostnaðaruppgjör liggur að mestu fyrir verður ekki séð að ástæða sé til að bíða lengur með slíka úttekt. Gerðardómsmálið snýst um ábyrgð verktakans gagnvart Kópavogsbæ, en það er ekki síður mikilvægt að skoða hvernig bærinn sjálfur stóð að undirbúningi, ákvarðanatöku, eftirliti og stjórnun verkefnisins. Bæjarbúar eiga rétt á svörum um hvernig svo fór að ein umfangsmesta framkvæmd Kópavogsbæjar endaði með þessum hætti. Það er ekki nóg að sækja rétt bæjarins gagnvart verktakanum. Bæjaryfirvöld þurfa líka að vera tilbúin að skoða eigin ákvarðanir og vinnubrögð. Það er mikilvægt að draga lærdóm af þessu máli og tryggja að sambærileg mistök endurtaki sig ekki,“ skrifar María í bókun fundarins í morgun.