Við Engjateig í Laugardal á að bora eftir heitu vatni - þar er reyndar nánast örugglega heitt vatn enda nokkrar borholur í kring. Framkvæmdir hófust formlega í dag.
„Við ætlum sem sagt með þessu vonandi að auka afkastagetu okkar um allt að 40% ef allt gengur að óskum,“ segir Sólrún Kristinsdóttir, framkvæmdastýra Veitna.
„En jarðvarminn er svo mikið ólíkindatól þá vitum við í rauninni ekki hvað við munum fá úr hverri holu.“
Ekki að fara yfir mörk svæðisins
Ekki hefur verið borað eftir heitu vatni í Laugardalnum í 44 ár, eða síðan 1982. Laugardalurinn hefur yljað borgarbúum í næstum 100 ár því fyrstu borholurnar voru við Þvottalaugarnar.
„Við vitum að lághitaholurnar okkar eru rosalega verðmætar á veturna og við getum hvílt þær á sumrin. Með því erum við að auka forðagetu okkar fyrir köldustu dagana og með því að hafa fleiri holur erum við að nýta auðlindina okkar betur.“
En eruð þið að ganga of mikið á þessa auðlind?
„Nei, alls ekki. Við vitum hvað svæðið getur annað og við erum alls ekki að fara yfir einhver efri mörk í því,“ segir hún.
Veitur nýta nú um níu holur í Laugardalnum. Eldri holur eiga það til að missa afköst með tímanum. Sólrún segir því nauðsynlegt að auka forðann.
„Við erum bæði í rauninni alltaf að bora til að viðhalda núverandi getu en líka þurfum við að auka núverandi getu til að mæta vaxandi byggð.“
Veitur áætla rúmlega milljarð í þetta verkefni í Laugardalnum. Til að byrja með verður borað á daginn til að minnka áhrifin á íbúa en borginni hafa ekki borist kvartanir til þessa.
„Við leggjum mikla áherslu á að íbúar finni sem minnst fyrir þessu. En aftur þegar við erum að sækja fram og tryggja grunninnviði fyrir íbúa þá kallar það á framkvæmdir og það getur verið eitthvað rask en mér skilst að það eigi að vera mjög lítið af þessum rafmagnsbor,“ segir Hildur.
„Hann hefur mun minni hljóðáhrif en aðrir borar, en ég hef ekki miklar áhyggjur. En svo veit ég að fólk skilur að til að viðhalda þessum lífsgæðum þarf að leggja aðeins til,“ segir Sólrún.