Jón Gnarr mætti í Reykjavík síðdegis rétt í þessu þar sem hann greindi nánar frá ákvörðun sinni um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir að ákvörðunin hafi verið þungbær og átt sér nokkurn aðdraganda. Hann er áfram flokksbundinn Viðreisn, enda telur hann flokkinn best henta sínum skoðunum, en finnur ekki lengur samleið með þingflokknum.
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“