Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þinginu þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Hún varðar það að fækka varaforsetum ASÍ úr þremur niður í einn. Tillagan var felld í laganefnd með 25 atkvæðum á móti 23 en var í kjölfarið lögð fyrir þingið þar sem að um 200 fulltrúar fengu að greiða atkvæði um hana.
Nú fer fram leynileg atkvæðagreiðsla um tillöguna á þinginu. Til stóð að fresta fundinum klukkan 16:30 en enn er beðið. Tómas Arnar, fréttamaður Vísis, er mættur á Hilton Reykjavík og bíður eftir því að fundargestir ganga úr salnum. Hann mun freista þess að fá viðbrögð frá helstu aðilum varðandi niðurstöðuna.
Bein útsending mun hefjast hér fyrir neðan.
Í stuttu máli eru átakalínurnar á milli Eflingar og VR. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sagt tillöguna koma úr ranni VR. Hún hefur sagt tillöguna vera tilraun Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til að sölsa undir sig völd innan ASÍ. Halla hefur alfarið hafnað því.
Sólveig Anna sagði í samtali við fréttastofu í gær að til skoðunar væri að Efling hreinlega segði sig úr sambandinu. Niðurstaða um fjölda varaforseta vegi þungt í því mati.
Þær bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta ASÍ en á morgun verða greidd atkvæði um varaforsetaembætti. Einnig verður nýr forseti ASÍ valinn á morgun og mun þá koma í ljós hver tekur við af Finnbirni Hermannssyni, fráfarandi forseta ASÍ.
Í framboði til forseta eru þeir Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðlafræðingur sem hefur starfað á skrifstofu ASÍ, og Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu.