Melaskóli í Reykjavík sigraði Svakalegu lestrarkeppnina, annað árið í röð.
Svakalega lestrarkeppnin er þriggja vikna lestrarátak fyrir krakka í 1.-7. bekk um land allt. Markmið hennar er að auka samvinnu og lestraránægju barna.
Nemendur í 108 skólum tóku þátt og lásu í ríflega tólf milljón mínútur.
Saga Katrín, Þorvaldur Dagur og Matthías Helgi segja það besta við bókalestur vera að komast inn í annan heim. Þau segja lestur sniðugan þegar þeim leiðist.
Hákon, 6 ára, segir best að lesa uppi í rúmi með mömmu og pabba.
Þau Sigurður, Samúel Bjarni og Laufey Matthildur voru stolt af sigrinum.
María Gísladóttir og Gunnhildur Halla Carr héldu utan um keppnina í Melaskóla. Þær segja mikla lestrarhefð í skólanum og að börnunum finnist gaman að lesa.