Tillaga miðstjórnar ASÍ um fækkun varaforseta úr þremur í einn var felld á landsþingi sambandsins rétt í þessu. Atkvæðagreiðslan var leynileg, sem er óvenjulegt á landsþingi ASÍ. Um 60% greiddu atkvæði með tillögunni en tvo þriðju atkvæða hefði þurft til að tillagan yrði samþykkt.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR buðu sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta sambandsins.
Sólveig Anna hefur ásakað Höllu um að vilja sölsa undir sig sambandið, meðal annars með fækkun varaforsetanna. Hún hefur einnig leitt að því líkum að Arnaldur Grétarsson, annar frambjóðenda til forseta ASÍ hefði boðið sig fram með stuðningi formanns VR.
„Með þessu reynir forysta VR að tryggja að formaður Eflingar, langstærsta félags verka og láglaunafólks á Íslandi með 28.000 meðlimi, hafi um fátt annað að ræða en að draga sig í hlé á vettvangi sambandsins,“ skrifaði hún á Facebook í vikunni.
Fréttin var uppfærð.