Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleggjudómum. Sumir hafa bókstaflega hraunað yfir mig og ég í sumum tilfellum brugðist við þeim yfirgangi. Í hita leiksins geta menn svitnað og glíman orðið römm. Menn hjóla oft í manninn en ekki málefnið, ad hominem en ekki argumentum ad rem eins og það heitir í fræðunum. Ráðist er á manninn en ekki textann: „Þú er prestur …“ o.s.frv. í miklum hneykslunartón.
Örn Bárður Jónsson skrifar: Gazalegur vandi