Jón Gnarr hættir í þingflokki Viðreisnar en styður ríkisstjórnina

Jón Gnarr hættir í þingflokki Viðreisnar en styður ríkisstjórnina

Jón Gnarr hættir í þingflokki Viðreisnar en styður ríkisstjórnina

Nú þegar við höfum fengið skýringar Jóns á úrsögn hans úr þingflokki Viðreisnar og viðbrögð formanns og þingflokksformanns ætlum við að ljúka þessari fréttavakt, en við minnum á að Jón Gnarr verður í ítarlegu viðtali í Kastljósi í kvöld.

Förum yfir það helsta:

  • Jón Gnarr afhenti forseta Alþingis bréf um úrsögn sína úr þingflokki Viðreisnar í gær og starfandi forseti tilkynnti ákvörðun hans við upphaf þingfundar í dag.
  • Jón hélt í kjölfarið stutta ræðu þar sem hann sagðist verða að fylgja sannfæringu sinni.
  • Jón er annar þingmaður stjórnarflokkanna sem hefur sagt sig úr þingflokki, en Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig úr Flokki fólksins fyrr á árinu, en styður ríkisstjórnina.
  • Jón Gnarr gerði skriflegt samkomulag við þingflokk Viðreisnar um samstarf og stuðning hans við ríkisstjórnina. Hann er enn flokksmaður í Viðreisn.
  • Í viðtali við fréttastofu sagði Jón að ástæða úrsagnarinnar væri bæði pólitísk og skipulagsleg. Hann vísaði meðal annars til ágreinings um forgangsröðun og sagðist hafa viljað frekari áherslu á málefni barna í flóknum vanda.
  • Pawel Bartoszek þingflokksformaður sagði brotthvarf Jóns mikið högg fyrir þingflokkinn.
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar sagðist bera endalausa virðingu fyrir Jóni og það væri erfitt að sjá á eftir honum.

Takk fyrir samfylgdina.

„Ég er náttúrulega mjög leið yfir þessu. Það er mikill missir af Jóni fyrir okkur úr þingflokknum. Hann hefur verið mjög strekur þar og sterk rödd, við þekkjum öll hugsjónir og kraft Jóns,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra og þingmaður Viðreisnar, í viðtali við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann um úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokknum.

„En góðu fréttirnar eru að sama skapi þær að hann ætlar áfram að styðja ríkisstjórnina í sínum góðu verkum. Hann er ekki að segja sig úr Viðreisn. Við deilum ennþá sömu gildum og hugsjónum. Og það sem mér þykir nú ekki minnst um vert er að við erum ennþá góðir vinir.“

Hann segir sjálfur að þetta eigi sér margra mánaða aðdraganda, hefur þú skynjað það?

„Nei, ég veit auðvitað að hann er í samtölum við forystu flokksins og þingflokksformenn og annað en nei ég get nú ekki sagt það. Auðvitað höfum við talað um alls konar hluti það gera þingflokkar og vinir innan þingflokka, en nei, þetta er auðvitað bara hans vegferð.“

Hann talar um að hann hafi ekki haft erindi sem erfiði að forgangsraða sínum málum og nefnir sérstaklega málaflokkinn börn með mikinn vanda, hafið þið átt í baráttu við hina stjórnarflokkana um þessi mál?

„Ekki svo ég viti til nei. Auðvitað felur stjórnarsamstarf þriggja flokka alltaf í sér allskonar málamiðlanir og það er samið um allskonar hluti, en ég kannast ekki við það nei. Að því sögðu er ég auðvitað með stóran og umsvifamikinn málaflokk sjálf þannig að það er kannski eitthvað sem hefur átt sér stað án minnar vitneskju, en ég kannast ekki við það.“

Er kurr í þingflokknum að öðru leyti?

„Nei það er það ekki. Við erum bara einhuga í því að fara inn í þennan seinni helming kjörtímabilsins af sama krafti og við tókumst á við fyrrihlutann. Þó að ríkisstjornin hafi áorkað mörgu og Viðreisn líka þá er margt óunnið ennþá og við bara einhendum okkur í þau verkefni.“

„Því er ekki að neita að þetta er auðvitað högg fyrir þingflokkinn að sjá að svona stór og mikill og merkilegur stjórnmálamaður eins og Jón Gnarr er sé á þessu stigi að ákveða að segja skilið við þingflokk Viðreisnar,“ segir Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar, í viðtali við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann.

Bar þetta brátt að?

„Ég held það sé ekki rétta spurningin til að svara, ég vissi af þessu kannski, ég var aðeins búinn að ræða þetta við Jón áður en hann tilkynnti þetta formlega á þingflokksfundi okkar núna áðan,“ segir Pawel.

Pawel segir að samstarfssamningur Jóns við þingflokk Viðreisnar felist í að hann styðji ríkisstjórnina, fjárlög og fjárlokalög og stefnumótandi frumvörp ríkisstjórnarinnar. Þá verði nefndarseta Jóns áfram svo til óbreytt: hann verði áfram nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, hann fari með formennsku í Íslandsdeild vestnorræna ráðsins og sitji áfr í Þingvallanefnd.

„Og hann fær sömuleiðis stuðning frá stoðþjónustu þingflokks Viðreisnar og sérþjónustunni ef hann óskar eftir því.“

Spurður hvort hann viti af hverju Jón tók ákvörðunina segir Pawel að það sé best að Jón svari því sjálfur.

Gengið var frá skriflegu samkomulagi við Jón Gnarr um að hann styðji áfram ríkisstjórnina og haldi áfram nefndarstörfum fyrir Viðreisn, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, í viðtali við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann.

Þorgerður segir Jón einstakan mann sem hafi verið ótrúlega gott að vinna með.

„Um leið er gott að við höfum skrifað undir samkomulag við Jón um að hann haldi áfram að styðja ríkisstjórnina og starfi meðal annars áfram fyrir okkur sem formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, sem hann hefur gert alveg frábærlega, og ég finn hlýjuna sem kemur bæði frá Færeyjum og Grænlandi þegar hann er annars vegar og hann verður áfram nefndarmaður.“

Þorgerður Katrín segir að það sé gömul saga og ný að mismunandi áherslur og skoðanir heyrist í stjórnarsamstarfi.

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við Jón Gnarr skömmu eftir að tilkynnt var um úrsögn hans úr þingflokki Viðreisnar. Við erum búin að skrifa upp úr viðtalinu hér að neðan en hér má sjá viðtalið í heild sinni.

Jón Gnarr segist ekki hafa séð aðra leið en að segja sig úr þingflokknum. Hann segist ekki hafa getað gefist upp á að berjast fyrir málefnum barna og því að koma þeim ofar í forgangsröð.

„Ég gefst ekki upp. Ég klára það sem ég byrja á og fylgi því eftir sem ég trúi. Ákvarðanir sem ég tek: ég fylgi þeim eftir. Mér leiðist líka hálfkák. Einhver hefði kannski tekið þá ákvörðun að hafa hægt um sig og þegja, svo einn daginn væri þetta búið og láta sig þá hverfa. Ég er ekki þannig maður,“ segir Jón í viðtali við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann.

„Ég styð ríkisstjórnina og ég er enn þá skráður í Viðreisn vegna þess að það er sá stjórnmálaflokkur sem samræmist best mínum pólitísku skoðunum um frjálslyndi, jafnrétti og velferð. Ég útiloka það ekkert að ég muni einhvern tímann sjá mér kost að snúa aftur í þingflokkinn en eins og stendur á ég ekki samleið.“

Jón segir að það komi alltaf upp ágreiningsmál og misjafnar áherslur í ríkisstjórnarsamstarfi. Hann segir að alltaf verði að miðla málum og gefa eftir, slíkt sé kjarni lýðræðis.

„Ég stend með ríkisstjórninni, ég er stoltur af því að tilheyra þessari ríkisstjórn, þessari stórmerkilegu, sögulegu ríkisstjórn, þannig að ég stend með ríkisstjórninni.“

Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður ræddi við Jón Gnarr rétt í þessu um úrsögn hans úr þingflokki Viðreisnar.

„Það er bæði pólitískt og skipulagslegt. Ég er ekki alltaf sammála forgangsröðun mála og þetta er búið að vera langur tími sem ég er búinn að vera að hugsa þetta og skoða möguleika mína. Þetta er líklega ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið en ég er skuldbundinn af stjórnarskrá Íslands til að fylgja sannfæringu minni. Mér finnst ég ekki geta vikist undan því. Ég get ekki logið að sjálfum mér um að ég eigi ekki að gera það.“

Aðspurður hvort þetta sé til marks um ósætti hans við forystuna eða þingflokkinn svaraði Jón:

„Ég er bara ekki alveg sammála. Ég kem inn í þetta samstarf með ákveðnar væntingar um ákveðnar aðgerðir og þá sérstaklega í málefnum barna í flóknum vanda, alvarlegum vanda. Ég hef beitt mér mjög persónulega í því. Ég vildi að það væri ofar á forgangslista þingflokksins og ég hef viljað fá það framar, ofar, á forgangslistann en það hefur kannski ekki verið nægilega ofarlega finnst mér. Frelsismál sem eru mér mjög kær, einstaklingsfrelsi og athafnafrelsi, ég er ósáttur við það.“

Jón tekur þó fram að sér hafi liðið mjög vel í samstarfinu og að hann sé gríðarlega stoltur af ríkisstjórninni.

„Mér finnst algjör heiður og forréttindi að fá að vera hluti af þessari ríkisstjórn af því að mér finnst hún vera að gera sögulega hluti. Það er með glerbrot í hjarta sem ég tek þessa ákvörðun og ég get ekki vikist undan henni.“

Jón Gnarr birti færslu á Facebook þar sem hann segir frá úrsögn sinni úr þingflokki Viðreisnar.

„Þetta er einhver þyngsta og erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið í lífinu en í samræmi við 48 grein Stjórnarskrár Íslands,“ skrifar Jón. „Ég mun halda áfram að vinna að þeim málum sem ég hef brunnið fyrir; málefnum barna í alvarlegum vanda og einstaklingsfrelsi.“

Það er óhætt að segja að óvenjuleg staða sé komin upp á Alþingi.

Stjórnarflokkarnir þrír fengu samtals 36 þingmenn kjörna í Alþingiskosningum í nóvember 2024. Af þeim hefur einn sagt sig úr sínum gamla flokki og annar hefur sagt sig úr þingflokki síns flokks en verður áfram flokksbundinn.

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig úr Flokki fólksins vegna óánægju með hvernig Inga Sæland, formaður flokksins, brást við veikindaleyfi hans sem varð til þess að Guðmundur Ingi varð að hætta sem ráðherra.

Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar en er áfram félagi í Viðreisn og styður ríkisstjórnina.

Því má segja að 36 þingmenn styðji ríkisstjórnina, 35 þeirra séu flokksbundnir í einhverjum stjórnarflokkanna þriggja og að 34 séu í þingflokkum þeirra.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, birti færslu á umræðuvettvangi Viðreisnar á Facebook. Þar sagði hún virða ákvörðun Jóns um brotthvarf en syrgja brotthvarf hans úr þingflokknum. „Það er þó gott til þess að vita að hann ætli áfram að vera félagi í Viðreisn.“

Miðað við skrif Þorgerðar virðist sem úrsögn Jóns snúist að einhverju leyti um starfshætti, ákvörðunartökur og hvernig hægt sé að bæta starfið. Hún segist taka slíkum ábendingum alvarlega og að Jón hafi meðal annars leitt mikilvæga vinnu í stefnumótunar og strategíuhópi til að bregðast við slíkum ábendingum.

Jón Gnarr gerði stuttlega grein fyrir úrsögn sinni úr þingflokki Viðreisnar við upphaf þingfundar. Hann sagðist hafa reynt það í lífinu að standa fyrir máli sínu og horfast í augu við fólk.

„Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg. Hún var ekki tekin nema eftir langa og vandlega umhugsun. Eins og stjórnarskráin skyldar mig til að gera þá fylgi ég sannfæringu minni.“

Hann tiltók þó ekki hvers vegna hann hefði sagt sig úr þingflokknum.

Bryndís Haraldsdóttir, fyrsti varaforseti Alþingis, tilkynnti rétt í þessu að Jón Gnarr hefði tilkynnt sér að hann hefði sagt sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann tjáði að hann myndi áfram styðja ríkisstjórnina í „hennar mikilvæga starfi til sjávar og sveita“.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggst Jón Gnarr áfram styðja ríkisstjórnina þó að hann segi sig úr þingflokki Viðreisnar. Sé svo þá gerir hann það sama og Guðmundur Ingi Kristinsson sem sagði sig úr Flokki fólksins en styður enn ríkisstjórnina.

Jón Gnarr verður gestur Bergsteins Sigurðssonar í Kastljósi í kvöld. Þar fer hann yfir ákvörðun sína um úrsögn úr þingflokki Viðreisnar og hvernig hann hyggst starfa í stjórnmálum í framhaldinu.

Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka sem sagði sig úr þingflokki Flokks fólksins fyrr á árinu, en styður ríkisstjórnina, segir að það sé hans skilningur að Jón Gnarr hafi sagt sig úr Viðreisn.

„Já það skilst mér,“ segir hann aðspurður.

Hann kveðst ekki vita af hverju.

Ætlið þið að stofna þingflokk saman?

„Við erum orðnir tveir, við gætum gert það.“

Góðan dag og velkomin á fréttavakt um stjórnmálin. Jón Gnarr hefur ákveðið að segja sig úr þingflokki Viðreisnar, samkvæmt heimildum fréttastofu. Búist er við því að hann geri grein fyrir ákvörðun sinni við upphaf þingfundar klukkan hálf tvö. Hann verður aðgengilegur í beinni útsendingu efst í fréttavaktinni.

#gnarr #hættir #jón #viðreisnar #þingflokki


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-15-jon-gnarr-haettir-i-thingflokki-vidreisnar-en-stydur-rikisstjornina-490023

📰 Aðrar fréttir

Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
📅 15.10.2026 👁️ 0
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
Fimm verkefnastjórum sem hafði verið sagt upp hjá Reykjavíkurborg var boðið starf sitt aftur. Fjórir þeirra fengu boð um tímabundna ráðningu.Stöðurnar...
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
📅 15.10.2026 👁️ 0
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
Eiturlyfjabarón sem er kallaður Dudus veitti Diddy alvarlega höfuðáverka í slagsmálum í fangelsi í New Jersey. Var hann reiður reiður rapparanum vegna...
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
📅 15.10.2026 👁️ 0
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannau...
Til­laga um að fækka vara­for­setum felld - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 0
Til­laga um að fækka vara­for­setum felld - Vísir
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og segir erfitt að sjá að þetta ferli...
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað
📅 15.10.2026 👁️ 0
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað
Tillaga miðstjórnar ASÍ um fækkun varaforseta úr þremur í einn var felld á landsþingi sambandsins rétt í þessu. Atkvæðagreiðslan var leynileg, sem er ...
„Þegar ég les bók líður mér eins og sagan sé allt“
📅 15.10.2026 👁️ 0
„Þegar ég les bók líður mér eins og sagan sé allt“
Melaskóli í Reykjavík sigraði Svakalegu lestrarkeppnina, annað árið í röð.Svakalega lestrarkeppnin er þriggja vikna lestrarátak fyrir krakka í 1.-7. b...
Banks say Healey is planning Budget tax raid on their profits
📅 15.10.2026 👁️ 0
Banks say Healey is planning Budget tax raid on their profits
Senior banking executives have told the BBC they expect to be "on the menu" in the chancellor's Budget tax later this month.
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka
📅 15.10.2026 👁️ 0
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka frá 1. nóvember næstkomandi, samkvæmt nýrri reglugerð um Loftslags- og orkusjóð.Styrkur til nýrra fólksbíla f...
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínuna eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
📅 15.10.2026 👁️ 1
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínuna eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna ...
Coca Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg endurnýja samstarfssamning
📅 15.10.2026 👁️ 2
Coca Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg endurnýja samstarfssamning
Coca-Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg halda áfram öflugu samstarfi. Hefur tryggt fræðslu og þjálfun ríflega 2.100 einstaklinga árlega un...
Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“
📅 15.10.2026 👁️ 1
Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“
Margrét Lilja Vilmundardóttir minnist Sigurðar Brynjólfssonar sem lést fyrir skemmstu. Sigurður, eða Siggi, eins og hann var kallaður var litríkur kar...
Hundruð milljóna fyrir jólakort og hraðasektir – Ólafur segir kröfuna út í hött
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundruð milljóna fyrir jólakort og hraðasektir – Ólafur segir kröfuna út í hött
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir harðlega kröfu Íslandspósts um að skattgreiðendur bæti fyrirtækinu kostnað vegna ...
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“
📅 15.10.2026 👁️ 1
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“
Jón Gnarr mætti í Reykjavík síðdegis rétt í þessu þar sem hann greindi nánar frá ákvörðun sinni um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir a...
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár
📅 15.10.2026 👁️ 2
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár
Við Engjateig í Laugardal á að bora eftir heitu vatni - þar er reyndar nánast örugglega heitt vatn enda nokkrar borholur í kring. Framkvæmdir hófust f...
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
📅 15.10.2026 👁️ 2
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“ Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfð­ust svara um hvort Eft­ir­lits­stofnun EFTA muni draga mál...
Telur ofbeldi í grunnskólum innflutt – Vill skrá uppruna gerenda
📅 15.10.2026 👁️ 2
Telur ofbeldi í grunnskólum innflutt – Vill skrá uppruna gerenda
Páll Vilhjálmsson telur að vaxandi ofbeldi í grunnskólum Reykjavíkur tengist innflytjendum og vill að uppruni gerenda verði skráður skipulega. Hann ka...
Rýtingur í hjartað þegar fólk segist ekki vita hvar sannleikann sé að finna
📅 15.10.2026 👁️ 1
Rýtingur í hjartað þegar fólk segist ekki vita hvar sannleikann sé að finna
Christiane Amanpour, aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, segir það sem rýting í hjarta sér að heyra fólk segja að það viti ekki lengur hvar það get...
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun
📅 15.10.2026 👁️ 2
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun
„Það eru mikilvægir fundir skipulagðir í dag með framkvæmdastjóra NATO, Frakklandsforseta og forsætisráðherrum Póllands, Danmerkur og Belgíu,“ skrifað...
Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ - Vísir
Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þinginu þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Hún varðar það að fækka varaforsetum ASÍ úr ...
Siggi Chaplin allur - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
Siggi Chaplin allur - Vísir
Sigurður fæddist 19. mars 1948, sonur hjónanna Brynjólfs Brynjólfssonar vélstjóra og Jóhönnu Guðmundsdóttur og yngstur fimm bræðra. Sigurður var borin...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Gazalegur vandi
📅 15.10.2026 👁️ 2
Örn Bárður Jónsson skrifar: Gazalegur vandi
Í orðræðu á samfélagsmiðlum, þar sem talað er í símskeytastíl í hita leiks, fer ýmislegt forgörðum. Umræðan verður oft að eintómum upphrópunum og sleg...
Orðið á götunni: Hræsni og ábyrgðarleysi Rósu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Hræsni og ábyrgðarleysi Rósu
Á Alþingi talar nú Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fyrir því að fella niður erfðafjárskatt, bara sisvona með engum fyrirvara og ...
Lést í stormi í Fær­eyjum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
Lést í stormi í Fær­eyjum - Vísir
Færeyska ríkisútvarpið greinir frá en í frétt miðilsins segir að starfsfólk hjá danska fyrirtækinu Bygma, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á byggi...
Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum - Vísir
Þetta segir Jón í samtali við Vísi. Líkt og komið hefur fram greindi hann frá því við upphaf þingfundar í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki Við...
Kostnaður við Barnaskóla Kársness langt yfir áætlun og bærinn sækir fullar heimtur
📅 15.10.2026 👁️ 2
Kostnaður við Barnaskóla Kársness langt yfir áætlun og bærinn sækir fullar heimtur
Kópavogsbær ætlar að sækja fullar heimtur vegna vanefnda vertakafyrirtækis við byggingu Barnaskóla Kársness. Kröfurnar hljóða upp á 3,9 milljarða krón...
Bandaríkin leggja til að frysting rússneskra eigna verði aflétt í þágu friðar í Úkraínu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bandaríkin leggja til að frysting rússneskra eigna verði aflétt í þágu friðar í Úkraínu
Bandaríkin leggja til að frysting rússneskra eigna verði aflétt í þágu friðar í Úkraínu Fréttin15. október 2026ErlentLeave a Comment Bandaríkin hafa l...
Einn lést í óveðrinu í Færeyjum í gær
📅 15.10.2026 👁️ 2
Einn lést í óveðrinu í Færeyjum í gær
Einn lést í óveðrinu sem gekk yfir Færeyjar í gær, sem tilkomið var vegna sama lægðakerfis og olli usla hér á landi. Danska ríkisútvarpið greinir frá ...
Játning Markle um hótelherbergi: „Þetta verður vandræðalegt“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Játning Markle um hótelherbergi: „Þetta verður vandræðalegt“
Hertogaynjan af Sussex, Meghan Markle, hefur ferðast um allan heim og gist á sumum af glæsilegustu hótelum sem bjóðast. Markle segist hafa tileinkað s...
Mörg ár liðu áður en Hrannar opnaði sig um missi á meðgöngu: „Þessi tvö líf sem kviknuðu en fengu aldrei að draga andann“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Mörg ár liðu áður en Hrannar opnaði sig um missi á meðgöngu: „Þessi tvö líf sem kviknuðu en fengu aldrei að draga andann“
„Eftir að dóttir mín lést þá misstum við barnsmóðir mín tvö fóstur snemma á meðgöngu. Á þeim tíma var ég enn að vinna úr dótturmissinum og gerði mér l...
Þetta var Jón Gnarr ósáttur við
📅 15.10.2026 👁️ 3
Þetta var Jón Gnarr ósáttur við
Jón Gnarr ræddi nú rétt í þessu við RÚV um úrsögn sína úr þingflokknum. Málefni barna í flóknum vanda komi þar við sögu. Það er að þau hafi ekki verið...
„Það er bæði pólitískt og skipulagslegt“
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Það er bæði pólitískt og skipulagslegt“
Jón Gnarr segist ekki hafa séð aðra leið en að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir bæði pólitískar og skipulagslegar ástæður fyrir ákvörðun...
Trans people should use hospital spaces according to biological sex, NHS England says
📅 15.10.2026 👁️ 3
Trans people should use hospital spaces according to biological sex, NHS England says
New guidance says trans patients should be cared for on single-sex hospital wards or bays that align with their biological sex.
Hættir við að skjóta Hasan í beinni - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hættir við að skjóta Hasan í beinni - Vísir
Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, sagði frá því í síðustu viku að til stæði að skjóta Hasan til bana á sömu herstöð og hann myrti þrettán og særði 32 ...
Trump hættir við að streyma aftökunni
📅 15.10.2026 👁️ 3
Trump hættir við að streyma aftökunni
Trump hættir við að streyma aftökunni Forseti Banda­ríkj­anna bregst við and­stöðu við umdeildum áformum Pete Hegseth varn­ar­mála­ráð­herra um að str...
Hætta við streymi frá aftöku fjöldamorðingja
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hætta við streymi frá aftöku fjöldamorðingja
Aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi geðlæknis í bandaríska hernum, sem drap 13 manns á Fort Hood-herstöðinni í Texas árið 2009, verður ekki streymt opin...
What are we really breathing in during a calima in the Canary Islands?
📅 15.10.2026 👁️ 3
What are we really breathing in during a calima in the Canary Islands?
Saharan dust remains the biggest contributor to poor air quality in the Canary Islands, but scientists have also identified industrial pollution reach...
Palli og Sigga í suð­rænni afmælissveiflu - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Palli og Sigga í suð­rænni afmælissveiflu - Vísir
Tapasbarinn fagnaði 26 ára afmæli þann 7. október síðastliðinn og hélt af því tilefni stóra veislu þar sem fjöldi góðra gesta fagnaði tímamótunum. Ges...
Sigga Beinteins í suð­rænni sveiflu með kæró - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
Sigga Beinteins í suð­rænni sveiflu með kæró - Vísir
Tapasbarinn fagnaði 26 ára afmæli þann 7. október síðastliðinn og hélt af því tilefni stóra veislu þar sem fjöldi góðra gesta fagnaði tímamótunum. Ges...
Keppinautur Netanjahús ætlar að enda yfirráð Hamas á 18 mánuðum
📅 15.10.2026 👁️ 3
Keppinautur Netanjahús ætlar að enda yfirráð Hamas á 18 mánuðum
Gadi Eisenkot, helsti keppinautur Benjamíns Netanjahús forsætisráðherra í komandi þingkosningum í Ísrael, heitir því að binda endi á yfirráð Hamas-sam...
Trump calls off livestream of Fort Hood attacker's execution by firing squad
📅 15.10.2026 👁️ 3
Trump calls off livestream of Fort Hood attacker's execution by firing squad
Trump said some would "rather not watch" the execution of Nidal Hasan, the first military execution in over 60 years.
Krefjast milljarða vegna Barna­skóla Kársness - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Krefjast milljarða vegna Barna­skóla Kársness - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Þar segir að árið 2021 hafi Kópavogsbær gert samning við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher u...
Eva og Ragnar tíma varla að fara - Setja samt eignina á sölu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Eva og Ragnar tíma varla að fara - Setja samt eignina á sölu
Eva Katrín Baldursdóttir, annar eigandi tískuvöruverslunarinnar Andrá, og Ragnar Jón Hrólfsson fréttamaður á RÚV, hafa sett íbúð sína á Reynimel á söl...
Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
📅 15.10.2026 👁️ 3
Jón Gnarr yfirgefur Viðreisn
Jón Gnarr er hættur í þingflokki Viðreisnar. Þetta hefur Vísir eftir heimildum sínum. Úrsögn Jóns hefur ekki úrslitaáhrif á meirihluta ríkisstjórnarin...
Þorgerður Katrín bregst við ákvörðun Jóns Gnarr – „Það breytist ekki“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Þorgerður Katrín bregst við ákvörðun Jóns Gnarr – „Það breytist ekki“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og utanríkisráðherra, hefur tjáð sig eftir að greint var frá því að Jón Gnarr hefði ákveðið að seg...
Jón Gnarr segist bera skylda til að fylgja sannfæringu sinni - „Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg“
📅 15.10.2026 👁️ 2
Jón Gnarr segist bera skylda til að fylgja sannfæringu sinni - „Þetta var erfið ákvörðun og ekki léttvæg“
Jón Gnarr hefur sagt sig úr þingflokki Viðreisnar og mun sitja áfram sem þingmaður utan þingflokks. Frá þessu var greint við upphaf þingfundar í dag þ...
Gianni Infantino: Fifa president apologises over World Cup move but told he must do more
📅 15.10.2026 👁️ 3
Gianni Infantino: Fifa president apologises over World Cup move but told he must do more
President Gianni Infantino apologises to the Fifa Council for his World Cup sell-off plan - but is asked to go further.
„Fyrst og fremst er það fólkið sjálft sem ber ábyrgð á sínu eigin öryggi“
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Fyrst og fremst er það fólkið sjálft sem ber ábyrgð á sínu eigin öryggi“
„Fyrst og fremst er það fólkið sjálft sem ber ábyrgð á eigin öryggi. Þannig virkar það. En auðvitað komum við öll að,“ segir Dagbjartur Kr. Brynjarsso...
Þorgerður Katrín: Jón alltaf velkomin aftur
📅 15.10.2026 👁️ 3
Þorgerður Katrín: Jón alltaf velkomin aftur
Þorgerður Katrín: Jón alltaf velkomin aftur Jón Gnarr heldur áfram í flokknum þó hann segi skilið við þing­flokk­inn. Formaður Við­reisnar segir að ho...
Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
📅 15.10.2026 👁️ 3
Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, og óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á honum. Halldór er brún...
Lög­reglan lýsir eftir Hall­dóri Inga - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Lög­reglan lýsir eftir Hall­dóri Inga - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Halldóri Inga Emilssyni sem er 43 ára.