Jón Gnarr þingmaður segir að langvarandi skortur hafi verið á skýrri forystu innan þingflokks Viðreisnar.
Hann sagði sig í dag úr þingflokki Viðreisnar. Hann ætlar eftir sem áður að styðja ríkisstjórnina og starfa með henni á þingi. Hann var gestur Kastljóss í kvöld.
Nokkrir dagar eru síðan Pawel Bartoszek tók við þingflokksformennsku. Flokkurinn hafði verið án þingflokksformanns frá upphafi þingvetrar eða síðan Sigmar Guðmundsson fór í veikindaleyfi.
„Ég hef ekki brugðist“
Jón ítrekar að hann kunni vel við fólkið í flokknum og fari ekki með gremju út úr þingflokknum.
„Mér finnst búinn að vera langvarandi skortur á skýrri forystu.“
Jón segist ekki vera óánægður með skipan Pawels í embætti þingflokksformanns.
„Ég var ósáttur við að það hafi ekki verið tekin ákvörðun. Ég vil taka það skýrt fram að ég hef ekki brugðist. Ég hef staðið mína pligt en mér finnst forysta flokksins hafa brugðist mér.“
Hann segir að forystan hafi ekki tekið ábyrgð.
„Ég sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum þar sem ég hef ekki nokkra einustu stjórn,“ sagði Jón Gnarr.
Hann segir aðstæðurnar birtast í ákvarðanafælni og klíkumyndun en vildi ekki segja hverjir tilheyrðu þeirri klíku.
„Líður eins og eiginkonu alkóhólista“
Aðspurður af hverju hann segi ekki skilið við flokkinn segir Jón að honum finnist hann tilheyra flokknum. Honum þyki vænt um flokkinn en verði að draga mörk.
„Mér líður eins og eiginkonu alkóhólista sem tekur þá ákvörðun einn daginn að flytja í næsta hús og búa ekki með alkóhólistanum. Það þýðir ekki að viðkomandi sé búin að afskrifa hjónabandið og er tilbúin að gefa því tækifæri ef hann tekur á sínum málum og bætir ráð sitt og þá er hægt að byggja eitthvað upp í framhaldinu,“ sagði Jón Gnarr.
Horfa má á viðtalið í heild hér að neðan.