Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir

Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir

Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir

Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegginn og þvert yfir íbúðina þar sem hún skildi eftir sig slóð eyðileggingar.

„[Platan] tekst á loft og lendir að hluta til á steyptum skúr sem er hérna hinum megin við götuna hjá okkur. Ef það hefði ekki gerst þá hefði ábyggilega ekkert orðið eftir af húsinu. Svo kemur þessi plata ásamt fleiru, sker í sundur og það fóru tveir ljósastaurar hérna sitt hvorum megin við húsið og grindverk hringinn í kringum húsið alveg kubbaðist niður.“ Þar að auki hafi tveir bílar sem stóðu við næsta hús skemmst í átökunum. „Þannig að þetta eru hamfarir.“

Klippa: Skemmdir inni hjá Ástu á Siglufirði

Hún handleggsbrotin og hann í krabbameinsmeðferð

„Maður er þakklátur almættinu fyrir að hafa ekki verið hérna og hafa þó þessa heilsu. Ég er að vísu nýhandleggsbrotin og eiginmaðurinn í krabbameinsmeðferð þannig að við erum kannski ekki alveg í besta standi í þessu. En við getum þetta.“

Þegar fréttamaður náði tali af Ástu í kvöld var hún á kafi í tiltekt ásamt eiginmanni sínum og syni.

„Hér er bara verið að rífa niður allt sem ónýtt er. Það er mikið að gera.“

Hér má sjá brakið sem fauk í áttina að húsinu og göt á útveggnum.Ásta Gunna Kristjánsdóttir

„Við urðum að moka hérna út til að reyna að loka húsinu því það snjóaði bara inn. Það er allt ónýtt í eldhúsi og svefnherbergi og burðarveggur bara ónýtur.“

Hjónin eru alla jafna búsett í Hafnarfirði en þau hafa átt þetta aukahús við Túngötu 29 á Siglufirði sem hún kallar sælureitinn í þrettán ár. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau hafa fundið fyrir náttúruöflunum en á flæddi inn í húsið fyrir meira en átta árum.

„Þetta hús á sína sögu. Það er ýmsu vant.“

Komust fyrst að húsinu í dag

Vinafólk lét þau vita af því í gær að húsið hefði skemmst í óveðrinu og komu hjónin til Siglufjarðar síðdegis í dag.

„Það var auðvitað ófært hingað í gær þannig að við lögðum af stað í morgun. Við erum núna búin að tæma allt út sem ónýtt er og núna er verið að rífa veggi.“ Útveggur sem snúi í norðurátt hafi eyðilagst í hvellinum í gær og einnig veggur sem skilur að svefnherbergi og eldhús.

„Hann gekk allur til. Þegar við erum búin að hreinsa allt út úr húsinu þá sjáum við þakplötuna sem skar í rauninni húsið í sundur því hún fer alveg hérna í gegnum svefnherbergið og eldhúsið. Það er mjög áberandi. Það þarf að rífa vegginn í norðuráttinni sem skemmdist,“ segir Ásta.

Hjónarúmið er skemmt og hluti af þakplötu hefur greinilega flogið í gegnum herbergið.Ásta Gunna Kristjánsdóttir

„Það var allt á floti inni og hjónarúmið alveg gjörsamlega í öreindum.“ Þá hafi þvottavél og ísskápur stórskemmst en ísskápshurðin var komin inn í næsta herbergi.

Hún segir greinilegt að mikil öfl hafi verið þarna að verki: „Það hafa verið svakaleg læti.“

Vonast eftir því að fá hjálp

„Við vorum búin að fá myndir þannig að maður var svona búinn að undirbúa sig andlega. En þetta var miklu verra heldur en að sjá á myndum. Það að standa inni í þessu er bara miklu verra, sjá allt og upplifa þessi öfl. Það er eiginlega mesta áfallið að náttúran skuli vera svona öflug.“

Ásta er þó brött og segir þetta einfaldlega vera verkefni sem þau hafi fengið í hendurnar og muni nú takast á við. Þau eiga von á matsmanni frá tryggingafélagi sínu á morgun.

Þvottavél og ísskápur fóru illa út úr hvellinum. Ásta Gunna Kristjánsdóttir

„Við vonum að það sé einhver sem komi og hjálpi okkur að gera eitthvað. Við erum bara eldri borgarar og höfum ekki burði til að gera þetta sjálf. Þó að við séum ótrúlega öflug þá eru takmörk.“

Verja þurfi húsið fyrir veðri og vindum þar sem nú sé hreinlega opið út og snjór kemur inn.

„Það er alveg ótrúlegt að sjá þessa járnplötu alveg inni í miðju húsi. En svona er þetta bara. Ég væri ógeðslega reið ef þetta hefði verið sprengja frá einhverjum vitleysingum en þetta var bara náttúran. Maður getur ekkert verið reiður út af því.“

Vongóð og þakklát

„Þetta er gamalt hús sem var upphaflega byggt fyrir sendibílastöð. Þá var það 50 fermetrar. Við keyptum það svoleiðis, byggðum við það og stækkuðum þannig að það er 100 fermetrar í dag og algjör sælureitur. Við getum gist hérna 20 manns og allir á skíðum og verið með stóra fjölskyldu þannig að þetta er bara algjört æði,“ segir Ásta um húsið.

Hún bindur vonir við að endurbætur muni ganga greiðlega fyrir sig.

„Jájájá, eins og ég segi þá dó enginn. Maður þarf alltaf að vera ánægður með það.“

#eftir #fyrir #lífi #vera #þakklát

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262949135d/thakklat-fyrir-ad-vera-a-lifi-eftir-ad-jarnplata-flaug-inn-likt-og-hnifur

📰 Aðrar fréttir

Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin
📅 15.10.2026 👁️ 0
Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin
Það getur verið freistandi að fá sér eitthvað gott í gogginn áður en haldið er til náða. Ný rannsókn bendir hins vegar til þess að þessi hversdagslegi...
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki
📅 15.10.2026 👁️ 1
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu manns, sem vikið var úr starfi sínu sem flugmaður, um 78,9 milljóna króna bætur...
Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 0
Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon - Vísir
CBS News greinir frá þessu. Yfirvöldum barst tilkynning um að skoti hefði verið hleypt af inn í bíl fyrir utan grunnskólann klukkan 12:59 að staðartím...
Þrjú börn látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon
📅 15.10.2026 👁️ 0
Þrjú börn látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon
Fjórir er látnir, þar af þrjú börn, eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-fylki í Bandaríkjunum í kvöld. Að minnsta kosti tveir voru fluttir alvarlega ...
Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir
📅 15.10.2026 👁️ 0
Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir
Annar ársfjórðungur í rekstri Haga hf. var umfram væntingar og afkomuspá fyrir rekstrarárið 2026-2027 hefur verið hækkuð um 800 milljónir króna. Þetta...
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
📅 15.10.2026 👁️ 1
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þek...
Lentu aftur í ó­förum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 0
Lentu aftur í ó­förum - Vísir
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegg og þvert yfir íbúði...
Bus hits train stopped on French side of  Channel Tunnel, with 19 injured
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bus hits train stopped on French side of Channel Tunnel, with 19 injured
Two people were severely injured and evacuated by helicopter but no one's life appeared to be in danger, officials said.
Sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja
📅 15.10.2026 👁️ 2
Sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja
Samband forseta Úkraínu og Bandaríkjanna hefur súrnað síðustu vikuna eftir að Trump samdi við Pútín um kaup á dísilolíu. Þegar Úkraínuforseti gagnrýnd...
„Bara 15. októ­ber og við erum auð­vitað uggandi yfir vetrinum“ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 2
„Bara 15. októ­ber og við erum auð­vitað uggandi yfir vetrinum“ - Vísir
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í gær kom fram að ölduhæð myndi ná hámarki um klukkan 21 í gær og að við svipaðar aðstæður í desember í fyrra hefði flæ...
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“
📅 15.10.2026 👁️ 2
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“
Friðrik Dór Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi á rúmlega 15 ára tónlistarferli. En þótt hittarnir hafi verið margir hefur leiðin ekki...
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans
📅 15.10.2026 👁️ 2
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans
Um fátt hefur verið fjallað meira í fréttum dag en óvænta úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón var í viðtali við Kastljós á RÚV nú í kvöld ...
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði
📅 15.10.2026 👁️ 2
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði
Áformum Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið mótmælt og samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti íbúa þar mótfallinn fiskeldi í firðinum. Lí...
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
📅 15.10.2026 👁️ 2
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“ Alþjóð­leg skýrsla segir að stefna stjórn­valda dugi ekki til að vernda 30 pró­sent lands og...
Why Harry and Meghan's UK relaunch felt so much like a royal engagement
📅 15.10.2026 👁️ 2
Why Harry and Meghan's UK relaunch felt so much like a royal engagement
The Duchess of Sussex has not done anything like the day of events in Nottingham for several years on British soil.
„Sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum“
📅 15.10.2026 👁️ 2
„Sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum“
Jón Gnarr þingmaður segir að langvarandi skortur hafi verið á skýrri forystu innan þingflokks Viðreisnar.Hann sagði sig í dag úr þingflokki Viðreisnar...
London suburban housing project wins top UK architecture award
📅 15.10.2026 👁️ 3
London suburban housing project wins top UK architecture award
Lion Green Road in Coulsdon was recognised for the way it responds to its surroundings.
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar
📅 15.10.2026 👁️ 3
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar
Össur Skarphéðinsson fyrrum formaður og ráðherra Samfylkingarinnar segir ljóst að úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar sé mikið áfall fyrir flok...
Hvað veistu um… þjóð­veginn frá Reykja­vík til Akur­eyrar? - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… þjóð­veginn frá Reykja­vík til Akur­eyrar? - Vísir
Á leiðinni er margt og mikið sem ber fyrir augu: opið útsýni, fjöll, firðir, sveitir, ár og vötn, auk einhverra þéttbýlisstaða og víðáttumikilla heiða...
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband
📅 15.10.2026 👁️ 3
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband
Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor emiritus í stjórnmálafræði, segir úrsögn Jóns Gnarrs úr þingflokki Viðreisnar hafa komið á óvart, atburðarrásin sé óve...
Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári - Vísir
Snorri reyndist auðvitað að hluta til sannspár en í dag tilkynnti Jón Gnarr að hann segði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur þó ekki sagt sig úr...
Snorri reyndist að hluta til sann­spár um ör­lög Jóns - Vísir

Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ
📅 15.10.2026 👁️ 3
Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands ...
„Auð­vitað er þessi at­burða­rás ekki mjög sam­einandi“ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Auð­vitað er þessi at­burða­rás ekki mjög sam­einandi“ - Vísir
Þetta sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í samtali við fréttastofu skömmu eftir að tillaga miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um að fækka varafor...
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínunnar eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínunnar eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna ...
Maðurinn sem yfirbugaði farþegann agndofa yfir framburði hans – „Þá er hann sjúkur maður“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Maðurinn sem yfirbugaði farþegann agndofa yfir framburði hans – „Þá er hann sjúkur maður“
Maður sem yfirbugaði og fjötraði farþega um borð í flugi Icelandair frá Baltimore til Keflavíkur 27. desember árið 2023 bar vitni í réttarhöldum yfir ...
Lenti í vanda vegna ferðamanna frá Ísrael og Palestínu - „Hvað á maður að gera í svona aðstæðum?“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Lenti í vanda vegna ferðamanna frá Ísrael og Palestínu - „Hvað á maður að gera í svona aðstæðum?“
Þórarinn Leifsson teiknari, rithöfundur og leiðsögumaður greinir frá því í færslu á Facebook að hann hafi lent í töluverðum vandræðum með hóp ferðaman...
Komu að húsi sínu gjörónýtu eftir veðurofsann
📅 15.10.2026 👁️ 3
Komu að húsi sínu gjörónýtu eftir veðurofsann
Fjölmörg handtök eru framundan á Siglufirði næstu daga við að meta tjón og taka til eftir óveðrið sem gekk þar yfir í gær. Þök fuku af þremur húsum og...
Streeting hvetur Bandaríkin til að styðja Úkraínu áfram
📅 15.10.2026 👁️ 3
Streeting hvetur Bandaríkin til að styðja Úkraínu áfram
Varnarmálaráðherra Bretlands hvetur Bandaríkin til að styðja við Úkraínu. Spenna milli Bandaríkjanna og Úkraínu hefur aukist vegna olíukaupa Bandaríkj...
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
Fimm verkefnastjórum sem hafði verið sagt upp hjá Reykjavíkurborg var boðið starf sitt aftur. Fjórir þeirra fengu boð um tímabundna ráðningu.Stöðurnar...
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
📅 15.10.2026 👁️ 4
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
Eiturlyfjabarón sem er kallaður Dudus veitti Diddy alvarlega höfuðáverka í slagsmálum í fangelsi í New Jersey. Var hann reiður reiður rapparanum vegna...
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannau...
Til­laga um að fækka vara­for­setum felld - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Til­laga um að fækka vara­for­setum felld - Vísir
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og segir erfitt að sjá að þetta ferli...
Til­laga um að fækka vara­for­setum naum­lega felld - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Til­laga um að fækka vara­for­setum naum­lega felld - Vísir
Af 290 atkvæðum féllu 174 með tillögunni og 111 gegn henni. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, studdi breytinguna og mætti mikilli andstöðu frá Sólveig...
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað
📅 15.10.2026 👁️ 4
Varaforsetum ASÍ verður ekki fækkað
Tillaga miðstjórnar ASÍ um fækkun varaforseta úr þremur í einn var felld á landsþingi sambandsins rétt í þessu. Atkvæðagreiðslan var leynileg, sem er ...
„Þegar ég les bók líður mér eins og sagan sé allt“
📅 15.10.2026 👁️ 4
„Þegar ég les bók líður mér eins og sagan sé allt“
Melaskóli í Reykjavík sigraði Svakalegu lestrarkeppnina, annað árið í röð.Svakalega lestrarkeppnin er þriggja vikna lestrarátak fyrir krakka í 1.-7. b...
Banks say Healey is planning Budget tax raid on their profits
📅 15.10.2026 👁️ 4
Banks say Healey is planning Budget tax raid on their profits
Senior banking executives have told the BBC they expect to be "on the menu" in the chancellor's Budget tax later this month.
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka
📅 15.10.2026 👁️ 4
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka
Styrkir til kaupa á nýjum rafbílum lækka frá 1. nóvember næstkomandi, samkvæmt nýrri reglugerð um Loftslags- og orkusjóð.Styrkur til nýrra fólksbíla f...
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínuna eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
📅 15.10.2026 👁️ 4
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínuna eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna ...
Coca Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg endurnýja samstarfssamning
📅 15.10.2026 👁️ 4
Coca Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg endurnýja samstarfssamning
Coca-Cola á Íslandi og Slysavarnafélagið Landsbjörg halda áfram öflugu samstarfi. Hefur tryggt fræðslu og þjálfun ríflega 2.100 einstaklinga árlega un...
Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“
📅 15.10.2026 👁️ 4
Minnast hins litríka Hafnfirðings Sigga Brynjólfssonar – „Svo notalegt að sjá hann ganga framhjá kirkjunni alla daga“
Margrét Lilja Vilmundardóttir minnist Sigurðar Brynjólfssonar sem lést fyrir skemmstu. Sigurður, eða Siggi, eins og hann var kallaður var litríkur kar...
Hundruð milljóna fyrir jólakort og hraðasektir – Ólafur segir kröfuna út í hött
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hundruð milljóna fyrir jólakort og hraðasektir – Ólafur segir kröfuna út í hött
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir harðlega kröfu Íslandspósts um að skattgreiðendur bæti fyrirtækinu kostnað vegna ...
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“
📅 15.10.2026 👁️ 4
Jón Gnarr tjáir sig um ákvörðun sína - „Ég er ekki bara einhver jólasveinn sko“
Jón Gnarr mætti í Reykjavík síðdegis rétt í þessu þar sem hann greindi nánar frá ákvörðun sinni um að segja sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann segir a...
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár
📅 15.10.2026 👁️ 4
Borað eftir heitu vatni í Laugardal í fyrsta sinn í 44 ár
Við Engjateig í Laugardal á að bora eftir heitu vatni - þar er reyndar nánast örugglega heitt vatn enda nokkrar borholur í kring. Framkvæmdir hófust f...
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
📅 15.10.2026 👁️ 4
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“
„Mér fyndist bara miklu betra að spyrja ESA um það“ Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar kröfð­ust svara um hvort Eft­ir­lits­stofnun EFTA muni draga mál...
Telur ofbeldi í grunnskólum innflutt – Vill skrá uppruna gerenda
📅 15.10.2026 👁️ 4
Telur ofbeldi í grunnskólum innflutt – Vill skrá uppruna gerenda
Páll Vilhjálmsson telur að vaxandi ofbeldi í grunnskólum Reykjavíkur tengist innflytjendum og vill að uppruni gerenda verði skráður skipulega. Hann ka...
Rýtingur í hjartað þegar fólk segist ekki vita hvar sannleikann sé að finna
📅 15.10.2026 👁️ 4
Rýtingur í hjartað þegar fólk segist ekki vita hvar sannleikann sé að finna
Christiane Amanpour, aðalfréttaskýrandi CNN í alþjóðamálum, segir það sem rýting í hjarta sér að heyra fólk segja að það viti ekki lengur hvar það get...
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun
📅 15.10.2026 👁️ 4
Zelensky kominn til Brussel - mætir á leiðtogafund ESB á morgun
„Það eru mikilvægir fundir skipulagðir í dag með framkvæmdastjóra NATO, Frakklandsforseta og forsætisráðherrum Póllands, Danmerkur og Belgíu,“ skrifað...
Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Ögur­stund fyrir fram­tíð Eflingar innan ASÍ - Vísir
Um er að ræða tillögu sem miðstjórn lagði fram á þinginu þrátt fyrir að vera ósammála um innihald hennar. Hún varðar það að fækka varaforsetum ASÍ úr ...
Siggi Chaplin allur - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Siggi Chaplin allur - Vísir
Sigurður fæddist 19. mars 1948, sonur hjónanna Brynjólfs Brynjólfssonar vélstjóra og Jóhönnu Guðmundsdóttur og yngstur fimm bræðra. Sigurður var borin...